Golf

Rauf bandaríska einokun með sögulegri frammistöðu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Henrik Stenson kyssir Silfurkönnuna á Royal Troon-vellinum í Skotlandi eftir sigurinn sögulega þar sem hann bætti tvö stærstu metin á Opna breska.
Henrik Stenson kyssir Silfurkönnuna á Royal Troon-vellinum í Skotlandi eftir sigurinn sögulega þar sem hann bætti tvö stærstu metin á Opna breska. vísir/Getty
Svíinn Henrik Stenson varð í gær fyrsti sænski karlinn sem vinnur risamót í golfi en hann hafði betur á Opna breska meistaramótinu í mögnuðu einvígi gegn Bandaríkjamanninum Phil Mickelson. Pútterinn hjá Stenson var svo heitur að það sætir furðu að maðurinn þyrfti ekki ofnhanska til að halda um hann á Royal Troon-vellinum í Skotlandi í gær.

Stenson fór lokahringinn á 63 höggum eða átta höggum undir pari og kláraði hringina fjóra á 264 höggum eða 20 höggum undir pari. Þetta er einfaldlega besta frammistaða sögunnar á þessu virtasta og stærsta risamóti hvers árs.

Svíinn bætti 16 ára gamalt met Tigers Woods sem vann Opna breska á 19 höggum undir pari árið 2000 og einnig eru þetta fæstu högg í sögunni en metið átti Ástralinn Greg Norman. Hann vann Opna breska á 267 höggum árið 1993.

Spilaði fyrir látinn vin sinn

Tilfinningarnar voru við það að bera Stenson ofurliði þegar hann tileinkaði sigurinn góðvini sínum Mike Gerbich, 74 ára gömlum Bandaríkjamanni sem lést á miðvikudaginn, degi áður en Opna breska meistaramótið hófst.

Stenson spilaði með sorgarband á fyrsta degi til minningar um þennan mikla vin sinn sem hann kynntist í Dúbaí.

„Ég missti góðan vin á miðvikudaginn sem barðist við krabbamein. Hann var með mér alla vikuna. Þetta er fyrir Mike,“ sagði Stenson er hann kyssti Silfurkönnuna, sigurlaunin á Opna breska, og hóf hana á loft í minningu vinar síns.

Rauf bandaríska einokun

Það kom fáum á óvart að Bandaríkjamenn röðuðu sér mjög snemma á mótinu í öll efstu sætin og að hinn bandaríski Phil Mick­elson væri í baráttunni til síðustu holu. Bandaríkjamönnum hefur nefnilega liðið mjög vel á Royal ­Troon-vellinum. Í síðustu fimm skipti fyrir síðustu helgi sem spilað var á vellinum bar Bandaríkjamaður sigur úr býtum.

Síðast vann Todd Hamilton Opna breska þegar það fór fram á Royal Troon en síðasti kylfingurinn sem er ekki frá Bandaríkjunum til að vinna Opna breska á Royal Troon á undan Stenson var Suður-Afríkumaðurinn Bobby Locke.

Stenson kom fram smá hefndum í gær en hann og Mickelson börðust um sigurinn á Opna breska fyrir þremur árum. Þá hafði sá bandaríski betur. Nú var komið að þeim sænska. tomas@365.is


Tengdar fréttir

Bætti sextán ára gamalt met Tiger og 23 ára gamalt met Norman

Kylfingurinn Henrik Stenson skrifaði sig í sögubækurnar er hann varð fyrsti sænski kylfingurinn til að vinna eitt af risamótunum í golfi en hann bætti með því 16 ára gamalt met Tiger Woods og 23 ára gamalt met Greg Norman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×