Innlent

Rauði krossinn styrkir Gasa

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Rauði hálfmáninn vinnur mikilvægt starf á Gasa.
Rauði hálfmáninn vinnur mikilvægt starf á Gasa. Vísir/AFP
Íslenski Rauði krossinn tilkynnti í gær um tíu milljóna króna framlag til hjálparstarfs palestínska Rauða hálfmánans á Gasa.

Einnig hefur verið opnaður söfnunarsími fyrir þá sem vilja styðja við bakið á hjálparstarfi Rauða hálfmánans.

Sjúkraliðar Rauða hálfmánans hafa unnið hættulegt starf síðustu daga við að hjúkra særðum, flytja þá á spítala og sjá um dreifingu hjálpargagna. Sjúkraflutningamenn hafa jafnvel orðið fyrir árásum sjálfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×