Innlent

Rauði krossinn sendir 11 tonn af fatnaði til Hvíta-Rússlands

Atli Ísleifsson skrifar
Fatagámar Rauða krossins.
Fatagámar Rauða krossins. Mynd/Þórir Guðmundsson
Rauði krossinn á Íslandi hefur sent af stað fatagám til héraðsins Grodno í vesturhluta Hvíta-Rússlands sem inniheldur rúmlega 11 tonn af fatnaði.

Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að mikil fátækt ríki á dreifbýlum svæðum Hvíta-Rússlands og sé Grodno þar engin undantekning. „Sérstaklega berskjaldaðir hópar eru til að mynda einstæðar mæður og eldri borgarar en áætlað er að um 12 þúsund skjólstæðingar komi til með að njóta góðs af sendingunni.

Rauði krossinn á Íslandi hefur átt náið samstarf við hvítrússneska Rauða krossinn og hefur sent sérvalinn fatnað í austurátt allt frá árinu 2012 en þá létust tugir Hvítrússa í kjölfar mikillar kuldatíðar.

Í fatagámnum er eru sérútbúnir fatapakkar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins um allt land hafa útbúið í verkefninu Föt sem framlag. Þar má finna notaðan fatnað jafnt sem nýprjónaða sokka og vettlinga, hlý teppi, úlpur, peysur, skó, barnasamfestinga og margt fleira. Er þetta fjórði fatagámurinn sem er sendur til Hvíta-Rússlands á þessu ári en þörfin hefur aukist gríðarlega á undanförnum mánuðum vegna mikils fjölda flóttamanna sem streymir til landsins frá stríðshrjáðri Úkraínu.

Að lokum vill Rauði krossinn á Íslandi skila þakklæti til almennings í landinu. Fatasöfnun Rauða krossins hefur gengið framar vonum undanfarin ár og það er með framlagi almennings sem reynist unnt að styðja við berskjaldaða, bæði hér heima og erlendis. Þá er ótalinn stuðningur Eimskipa, sem greiðir götu fatagáma á áfangastað, og fyrirtækja á borð við Zöru, Hagkaup og ekki síst Lín Design sem hafa verið til fyrirmyndar við endurnýtingu á fatnaði og vefnaðarvöru.

Rétt er að minna á að hægt er að nýta eða endurnýta allan fatnað og alla vefnaðarvöru, sama hvernig ásigkomulagið er. Fatagáma Rauða krossins má finna um allt land, nánari upplýsingar um staðsetningu þeirra má finna hér,“ segir í tilkynningunni.

Fatagámur Rauða krossins.Mynd/Rauði krossinn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×