Glamour

Rauðar varir eiga alltaf við

Ritstjórn skrifar
Adriana Lima
Adriana Lima GLAMOUR/GETTY
Eins og glöggir lesendur Glamour vita, þá er kvikmyndahátíðin í Cannes í fullum gangi og stjörnurnar tjalda öllu til fyrir rauða dregilinn. Kjólarnir frá öllum helstu hönnuðum heims, hárið óaðfinnanlegt og förðunin glæsileg.

Rauður varalitur hefur verið vinsæll þetta árið á rauða dreglinum enda talin nokkuð skotheld leið til að ná fram fallegu og klassísku útliti.

Neðst í fréttinni er að finna myndband með leiðbeiningum að fullkominni förðun með rauðum varalit. En sjáum fyrst myndir af öllum helstu stjörnunum í Cannes skarta fagurrauðum vörum.

Sara Sampaio falleg með rauðan varalitglamour/getty
Bella Hadid í rauðum kjól með varalit í stíl.glamour/getty
Elle Fanning fallega förðuð.glamour/getty
Salma Hayek alltaf falleg.glamour/getty
Rauðu varirnar í aðalhlutverki á Tildu Swinton.glamour/getty
Natasha Poly með flotta förðun.glamour/getty





×