Tónlist

RATM-liðar stofna ofurgrúbbu ásamt röppurunum Chuck D og B-Real

Birgir Örn Steinarsson skrifar
"Hinir" þrír úr Rage Against the Machine nenna greinilega ekki að bíða endalaust eftir söngvaranum Zack de la Rocha.
"Hinir" þrír úr Rage Against the Machine nenna greinilega ekki að bíða endalaust eftir söngvaranum Zack de la Rocha. Vísir
Tónlistarvefurinn NME fullyrðir að þrír fjórðu meðlima Rage Against the Machine séu við það að stofna nýja súpergrúbbu með röppurunum Chuck D úr Public Enemy og B-Real úr Cypress Hill. Nýja sveitin kemur líklegast til með að heita Prophets of rage en nú þegar hefur verið opnað vefsvæði fyrir sveitina. Þegar þetta er skrifað er þar aðeins að finna niðurtalningu sem virðist vera að telja niður að einhverju sem mun gerast eða birtast 30. maí næstkomandi.

Nýja sveitin er því í raun Rage Against the Machine án söngvarans Zack de la Rocha sem vinnur þessa daganna að nýrri plötu ásamt rapparanum og upptökustjóranum El-P.

Annað sinn sem "hinir" stofna nýja sveit

Þetta verður nú ekki í fyrsta skiptið sem Tom Morello gítarleikari, Tim Commerford bassaleikari og Brad Wilk trommari stofna „nýja“ hljómsveit undir öðrum merkjum en Rage Against the Machine. Þeir störfuðu saman í nokkur ár undir nafninu Audioslave ásamt Chris Cornell eftir að De La Rocha yfirgaf fyrrum félaga sína.

Hér fyrir neðan má sjá og heyra tónleika Rage Against the Machine í Kaplakrika á Íslandi sem fram fóru 6. júní 1993 í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×