Lífið

Rassinn hennar er listaverk

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sean Combs.
Sean Combs. vísir/getty
Tónlistarmaðurinn Sean „Diddy“ Combs hefur ekkert nema gott að segja um leik- og söngkonuna Jennifer Lopez en næstum því fimmtán ár eru síðan þau voru par.

„Guð minn góður. Ég er svo heppinn að þessi frábæra kona er partur af minni sögu. Hún er ein sú stórkostlegasta sem ég hef kynnst,“ segir Sean í samtali við Billy Bush í sjónvarpsþættinum Access Hollywood Live.

Billy spyr Sean út í afturenda Jennifer sem hún sýnir gaumgæfilega í tónlistarmyndbandi við lagið Booty.

„Ég meina, hann er frábær. Hann er listaverk. Hann fer í sögubækurnar,“ svarar Sean og bætir við að rass Jennifer sé flottari en afturendi Kim Kardashian.

Jennifer Lopez og Sean árið 2000.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×