Lífið

Rassaæfingar með Margréti Gnarr - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Margrét kenndi Andra sitthvað í ræktinni.
Margrét kenndi Andra sitthvað í ræktinni. vísir
Margrét Edda Gnarr er ein fremsta módelfitness kona landsins og nýlega vann hún stórmót í Bandaríkjunum.

Andri Ólafsson, sjónvarpsmaður í þættinum Ísland í dag, fékk að kíkja með henni í ræktina í gær og sjá hvernig hún fer að því að halda sér í svona rosalegu formi.

Margrét byrjaði á því að taka svakalega upphitun en þá gengur hún í miklum halla. Því næst fór hún yfir í æfingar þar sem unnið var með eigin líkamsþyngd.

Margrét sýndi Andra sérstakar rassaæfingar að þessu sinni og spurning hvort hann fari nú á fullt í ræktina. Virkilega skemmtilegt innslag sem sjá má hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×