Innlent

Raskanir á ferðum strætó í dag

Atli Ísleifsson skrifar
Farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með fréttum, en þær verða uppfærðar í rauntíma á forsíðu strætó.
Farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með fréttum, en þær verða uppfærðar í rauntíma á forsíðu strætó. Vísir/Vilhelm
Raskanir verða á ferðum strætó vegna óveðursins sem gengur yfir landið í dag.

Í tilkynningu frá Strætó segir að þegar bætir í vind og úrkomu á höfuðborgarsvæðinu megi búast við að götur í úthverfum verði ófærar fyrir strætisvagna.

Bílar á vegum Ferðaþjónustu fatlaðra munu aka eins og venjulega á meðan veður leyfir.

Farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með fréttum, en þær verða uppfærðar í rauntíma á forsíðu strætó, www.straeto.is og á facebook-síðu strætó.

„Leið 55: Fyrsta ferð frá Reykjavík 06:23 og Reykjanesbæ kl. 06:55 eru á áætlun. Athugað verður með ferðina kl 08:23 frá Reykjavík, en öllum ferðum eftir það hefur verið aflýst þar til veðrið gengur niður.

Leið 57: Ferðum til og frá Akureyri í dag hefur verið aflýst. Ekið er á milli Borgraness/Akranes og Reykjavíkur á meðan færð leyfir.

Leið 51: Fyrstu ferðir dagsins eru á áætlun. Ferðin frá Mjódd kl. 07:00 ekur áleiðis á Hvolsvöll. Ferðinni frá Höfn 11:55 hefur verið aflýst,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×