Fótbolti

Rasistar grættu leikmann Partizan Belgrad

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Everton Luiz gengur grátandi af velli.
Everton Luiz gengur grátandi af velli. vísir/afp
Everton Luiz, brasilískur leikmaður Partizan Belgrad, varð fyrir kynþáttaníði í nágrannaslag gegn Rad Belgrad í gær.

Stuðningsmenn Rad Belgrad beittu Everton kynþáttaníði; gáfu frá sér apahljóð og hrópuðu ókvæðisorð að honum.

Everton gekk tárvotur af velli eftir leikurinn var flautaður af.

„Ég gat ekki haldið aftur af tárunum því ég var beittur kynþáttaníði allan leikinn,“ sagði Everton sem varð fyrir vonbrigðum með viðbrögð leikmanna Rad.

„Það sem hneykslaði mig mest var framkoma mótherjanna. Í staðinn fyrir að róa stuðningsmenn sína studdu þeir þessa hegðun. Ég vil gleyma þessu sem fyrst,“ sagði Brasilíumaðurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×