Enski boltinn

Rashford skrifar undir fjögurra ára samning við United

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Marcus Rashford við undirskriftina í dag.
Marcus Rashford við undirskriftina í dag. mynd/manutd.com
Marcus Rashford, framherji Manchester United, er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við félagið en þetta kemur fram á heimasíðu liðsins.

Þessi 18 ára strákur sló í gegn með United á seinni hluta leiktíðar sem hófst með því að hann skoraði fyrsta markið sitt í fyrsta leiknum sínum sem var Evrópuleikur á móti Midtjylland. Hann skoraði tvívegis í þeim leik.

Þremur dögum síðar spilaði Rashford fyrsta deildarleikinn gegn Arsenal á Old Trafford og skoraði þar fyrsta deildarmarkið sitt. Hann fullkomnaði svo „þrennuna“ með því að skora fyrsta landsliðsmarkið fyrir England eftir 135 sekúndur í fyrsta landsleiknum gegn Ástralíu á föstudagskvöldið.

Rashford skoraði átta mörk í 17 leikjum fyrir Manchester United en talið er að hann fái nú 20.000 pund á viku í laun en bónusar og aðrar árangurstengdar greiðslur hækki launapakkann verulega.

„Ég er í skýjunum með að skrifa undir nýjan samning. Ég hef alltaf verið stuðningsmaður Manchester United þannig það er draumi líkast að spila fyrir liðið. Ég er þakklátur að hafa fengið tækifæri til að sanna mig,“ segir Marcus Rashford um nýja samninginn.

Strákurinn ungi bíður nú spenntur eftir að Roy Hodgson, þjálfari enska landsliðsins, tilkynni hópinn sem fer á EM en hann var valinn í 25 manna hópinn. Tveir verða skornir frá þeim hópi áður en haldið verður til Frakklands.


Tengdar fréttir

Hodgson: Rétt ákvörðun að velja Rashford í hópinn

Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, segir að Marcus Rashford, framherji Manchester United, búi yfir gríðarlega miklum hæfileikum en hafi ekki mikinn tíma til að sýna sig og sanna fyrir EM í Frakklandi sem hefst í næsta mánuði.

United-mennirnir sáu um mörkin hjá Englendingum í kvöld

England vann 2-1 sigur á Ástralíu í vináttulandsleik í Sunderland í kvöld en þetta var síðasti landsleikur Englendinga áður en Roy Hodgson sker hópinn niður um þrjá og velur þá 23 sem fara á Evrópumótið í Frakklandi.

Rooney: Framtíðin björt hjá Man. Utd

Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, segir að framtíðin sé björt hjá félaginu með svona marga unga og skemmtilega stráka í sínum röðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×