RARIK semur við samsærismenn

Fréttablaðið Aðsendar greinar 27. janúar 2012 06:00
Árni Árnason framkvæmdastjóri hjá ÁRVÍK hf.
Árni Árnason framkvæmdastjóri hjá ÁRVÍK hf.
Árni Árnason skrifar:
Samkvæmt reglum á EES svæðinu er opinberum aðilum óheimilt að semja við fyrirtæki sem hafa verið sakfelld fyrir þátttöku í skipulögðum brotasamtökum. Engu að síður fór hún hljótt fréttin sem birtist undir jólin að RARIK hefði samið um stórt hitaveituverkefni við erlent fyrirtæki sem hlotið hefur sekt fyrir gróft samkeppnisbrot. Með samningnum fer úr landi verkefni sem munar um í núverandi atvinnuástandi og verkefni sem hefði skilað töluverðum skatttekjum í opinbera sjóði. Útboð þetta hefði gjarnan mátt fá ítarlegri umfjöllun í fréttum.

Markaðurinn á meginlandi Evrópu fyrir rör og efni til fjarvarmaveitna á sér nokkra sérstöðu í samkeppnisrétti Evrópusambandsins. Í október 1998 var skýrt frá því að samkeppnisyfirvöld (European Commission) hefðu sektað tíu fyrirtæki um samtals 92,2 milljónir ECU fyrir að starfrækja leynilegt samstarf (cartel) sem gekk út á að skipta markaði, ná samkomulagi milli þátttakenda um verð á lagnaefni og skipta á milli sín hver aðila í samsærinu ætti að vera sigurstranglegastur í tilteknum útboðum á rörum til fjarvarmaveitna. Í samstarfinu fólust einnig tilraunir til þess að knésetja keppinaut, þ.e. fyrirtækið Powerpipe í Svíþjóð, sem vildi ekki taka þátt í samráðinu. Voru því greiddar skaðabætur sem námu a.m.k. 50 milljónum sænskra króna en aðilar samsærisins fengu háar sektir.

Svissneska fyrirtækið ABB Asea Brown Boveri Ltd., en aðalverksmiðja þess er í Danmörku, var í forsvari fyrir hópnum enda langstærst á markaðnum. Það hlaut sekt sem nam 70 milljónum ECU (ISK 11,2 milljarðar) en það næsta í röðinni, Løgstør Rør A/S í Danmörku hlaut sekt sem nam 8,9 milljónum ECU (ISK 1,4 milljarðar). ECU, Evrópumyntin, er forveri evrunnar.

Í ágúst 2007 tók gildi hér á landi reglugerð um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutning og fjarskipti (nr. 755/2007). Í 3. gr. hennar segir að nánar skilgreindir opinberir aðilar og fyrirtæki skuli „útiloka frá gerð opinbers samnings sérhvern þátttakanda eða bjóðanda, sem hefur verið sakfelldur með endanlegum dómi“ m.a fyrir „þátttöku í skipulögðum brotasamtökum“.

Þessi forsaga rifjaðist upp fyrir mér þegar sagt var frá því að RARIK hefði ákveðið að taka tilboði frá Løgstør Rør A/S upp á 465 milljónir ISK. Tilboðið var fyrir Hitaveitu Blönduóss og hitaveitu á Skagaströnd og í nærliggjandi dreifbýli. Í ljósi framanritaðs og forsögunnar vekur það nokkra undrun að RARIK, opinbert fyrirtæki, skuli velja röraframleiðanda með þessa forsögu til verksins. Íslenska ríkið hefur af því umtalsverða skattalega hagsmuni að innlendir aðilar sinni framleiðslunni og skatttekjur af vinnu og útgjöldum allra þeirra sem að verkinu koma renni í opinbera sjóði. Á tímum atvinnuleysis væri í grannlöndum okkar leitað leiða við undirbúning og framkvæmd verks sem þessa til þess að þarlendir aðilar hefðu forskot í samkeppninni.

Það var þess vegna með nokkurri forvitni að ég kynnti mér útboðsgögn til þess að kanna hvort sjá mætti þess merki að ætlunin hefði verið að færa innlendum aðilum verkið á silfurfati. Niðurstaðan var þveröfug. Ef eitthvað er má fremur segja að útboðið sé skrifað með hagsmuni erlendra bjóðenda að leiðarljósi. Hér bendi ég á að allt lagnaefnið á að afhendast í einu lagi ekki seinna en 1. júní 2012 sem gerir erlendum aðila sennilega kleift að fá leiguskip til flutnings á lagnaefninu. Þá er reiknað með að varan verði staðgreidd af kaupanda innan þriggja vikna eftir afhendingardag.

Þetta eru stífir greiðsluskilmálar. Þegar tveggja ára framkvæmdatími er hafður í huga er RARIK að taka á sig vexti á framkvæmdatíma vegna fjárbindingar í lagnaefni sem eru langt umfram þann verðmun sem fólst í boði lægstu bjóðenda. Munurinn á tilboðum var 7% en til samanburðar eru kjörvextir Íslandsbanka með 1% álagi nú 7%. Loks má nefna að áskilið var að boð aðila væri í evrum sem leysir marga erlenda aðila undan gengisáhættu en færir hana til kaupandans, RARIK. Innlendur framleiðandi tekur einnig gengisáhættu vegna innlends kostnaðar. Ef evran braggast, þó ekki sé nema í það horf sem var í lok síðasta sumars, hefur samningsfjárhæðin hækkað um 4%.

Með þessu er ég ekki að segja að útboðið hafi verið skrifað fyrir erlenda aðila. Það vakti hins vegar undrun mína að sá aðili, sem er ráðgjafi kaupanda, mun aldrei hafa heimsótt eina innlenda aðilann sem kom til greina, þ.e. Set ehf. á Selfossi, til þess að kynna sér starfsemi hans. Set er eitt af leiðandi fyrirtækjum í Evrópu í sinni grein. Ég hef oft heimsótt fyrirtækið með erlendum sérfræðingum á sviði lagnamála og hafa þeir lokið upp miklu lofsorði á starfsemi þess.

Þá er í útboðsgögnum að finna nokkuð sérstæðar villur. Þar er vísað til laga sem eru ekki lengur í gildi. Einnig er vísað til DIN staðla í útboðslýsingu en þeir staðlar hafa vikið fyrir nýrri EN stöðlum.

Þetta er hins vegar nokkuð, sem þeir, sem hafa verið lengi í viðskiptum, kippa sér ekki mikið upp við enda eru úreltar lýsingar í útboðum algengari en ætla mætti.
Á löngum viðskiptaferli hef ég séð mikið af óvönduðum útboðslýsingum. Fullkomin aðferðafræði við opinber innkaup almennt verður seint fundin. Ef engar reglur gilda má stórlega mismuna aðilum. Reynslan hefur þó kennt mér að útboð sé ekki gefin leið til þess að allt sé uppi á borðinu og gegnsæi og heiðarleiki ríki í ferlinu. Þar með er ekki sagt að svo hafi ekki verið í þessu tilviki.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / RARIK semur við samsærismenn