Innlent

Rannsóknasjóður: Úthluta 835 milljónir króna til 65 verkefna

atli ísleifsson skrifar
Hlutverk sjóðsins er að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknartengt framhaldsnám á Íslandi.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknartengt framhaldsnám á Íslandi. Vísir/Getty
Stjórn Rannsóknasjóðs hefur samþykkt að veita styrki til 65 nýrra verkefna fyrir alls 835 milljónir króna á þessu ári.

Í frétt á vef Rannís segir að styrkirnir séu flestir til þriggja ára, en alls bárust 302 umsóknir í sjóðinn og var samtals sótt um rúmlega 4 milljarða.

„Einnig verður úthlutað tæplega 1800 milljónum í framhaldsstyrki fyrir verkefni frá 2015 og 2016. Sjóðurinn fékk um 2,5 milljarða á fjárlögum ársins 2017 til að fjármagna bæði nýja styrki og framhaldsstyrki.

Að þessu sinni voru veittir 4 öndvegisstyrkir, 33 verkefnisstyrkir, 14 rannsóknastöðustyrkir og 14 doktorsnemastyrkir. Öndvegisstyrkirnir eru stærstu styrkir sjóðsins og úthlutað var að þessu sinni til eftirfarandi verkefna:



  • Fötlun fyrir tíma fötlunar, verkefnisstjóri Hanna Björg Sigurjónsdóttir
  • ETHOS - Ný eðlisfræði hulduefnis: Áhrif á myndun, þróun og gerð vetrarbrauta, verkefnisstjóri Jesus Zavala Franco
  • Þjóðarátak gegn krabbameinum - Blóðskimun til bjargar, verkefnisstjóri Sigurður Yngvi Kristinsson
  • Langtímavaxtarsería kvarna og samloka í tengslum við viðgang þorskstofna og loftslag í NA-Atlantshafi, verkefnisstjóri Steven Campana.“


Nánar má lesa um styrkveitingarnar á heimasíðu Rannís.

Rannsóknasjóður heyrir undir mennta- og menningarmálaráðherra. Hlutverk sjóðsins er að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknartengt framhaldsnám á Íslandi, en úthlutað er einu sinni á ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×