Erlent

Rannsóknarblaðamennirnir að baki Panama-lekanum stilla miðið á Donald Trump

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Donald Trump.
Donald Trump. Vísir/Getty
Rannsóknarblaðamennirnir Frederik Obermaier og Bastian Obermeyer hvetja fjölmiðla í Bandaríkjunum til þess að taka höndum saman, líkt og fjölmiðlar gerðu í Panama-lekanum, til þess fjalla um Donald Trump og þá ógn sem þeir segja að seta hans í Hvíta húsinu sé gegn lýðræði í Bandaríkjunum.

Þetta kemur fram í skoðanagrein sem þeir skrifa í The Guardian. Þeir starfa hjá Süddeutsche Zeitung í Þýskalandi. Gátu þeir sér gott orð fyrir umfjöllun þeirra um Panama-skjölin sem lekið var til fjölmiðla og urðu meðal annars til þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði af sér sem forsætisráðherra Íslands.

Segja þeir að samstarf þeirra 107 fjölmiðla sem komu að fréttaflutningi af Panama-skjölunum í samstarfi við International Consortium of Investigative Journalists hafi orðið til af einni ástæðu. Þær upplýsingar um eignir auðmanna á aflandssvæðum sem þar komu fram hafi einfaldlega verið of miklar og of mikilvægar til þess að einn fjölmiðill gæti fjallað um þær á sómasamlegan hátt.

Nú standi bandarískir fjölmiðlar frammi fyrir frétt sem sé svo mikilvæg og svo stór að enginn einn fjölmiðill geti fjallað um hana. Að mati blaðamannanna er fréttin möguleg ógn Donald Trump sem forseta Bandaríkjanna við lýðræði þar í landi.

Segja þeir að árásir Trump á blaðamenn séu skipulagðar og nefna þeir sem dæmi nýlegar árásir fjölmiðlafulltrúa Trump á blaðamenn vegna fréttaflutnings um mismuninn á fjölda þeirra sem voru viðstaddir innsetningarathöfn Barack Obama miðað við innsetningarathöfn Trump.

Segja þeir mikilvægt að fjölmiðlar starfi saman til þess að varpa ljósi á tengsl Trump við Rússland, alþjóðleg viðskiptatengsll Trump og ríkisstjórnar hans og mögulega hagsmunaárekstra.

Benda þeir á að Donald Trump eigi hluti í hundruð fyrirtækja og því sé ómögulegt fyrir einn fjölmiðil að fjalla um viðskiptatengsl Donald Trump.

Lesa má grein þeirra hér í heild sinni hér.

Uppfært:Í fréttinni var því haldið fram að Frederik og Bastian væru bræður. Þrátt fyrir keimlík eftirnöfn eru þeir það ekki. Það hefur verið leiðrétt og beðist er velvirðingar á mistökunum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×