Innlent

Rannsókn þokaði lítið áfram í dag

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Grímur Grímsson yfirmaður rannsóknar á hvarfi Birnu Brjánsdóttur fyrir miðri mynd.
Grímur Grímsson yfirmaður rannsóknar á hvarfi Birnu Brjánsdóttur fyrir miðri mynd. vísir/anton brink
Grímur Grímsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og stjórnandi rannsóknar á hvarfi Birnu Brjánsdóttir segir að lögreglan sé ekki nær því að ljúka rannsókn sinni eftir daginn í dag.

„Við erum enn að rýna í gögn sem við erum með og binda þetta saman, það hefur ekkert nýtt komið fram í dag“ segir Grímur en leit björgunarsveitanna hefur heldur ekki skilað árangri í dag.

Þá hefur lögreglan ekki enn haft uppi á ökumanni hvítrar bifreiðar sem lýst var eftir í gær, sem talið er að sé af gerðinni Honda Accord.

Sjá einnig: Fólkið sem leitaði í dag: „Þetta er þverskurður þjóðarinnar“

Lögregla hefur áður tekið fram að ökumaðurinn er ekki grunaður um neitt misjafnt, en að hann gæti hugsanlega búið yfir upplýsingum sem gagnist lögreglunni. Að sögn Gríms hafi einhverjar ábendingar þó borist lögreglunni sem unnið er úr.

Vinna lögreglu við rannsókn mun halda áfram á morgun og verða verkefnin af svipuðum toga. „Við munum halda áfram að vinna úr fyrirliggjandi gögnum.“

Fram kom í dag að lögregla, í kjölfar upplýsinga frá sérfræðingum, geti ekki lengur gengið út frá því að slökkt hafi verið handvirkt á síma Birnu eins og áður var talið. Tveir menn sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald í fyrradag í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur voru fluttir á Litla Hraun í gærkvöld.

Það var ekki talin þörf á að yfirheyra þá í dag en þeir voru yfirheyrðir nokkuð stíft dagana eftir handtökuna.


Tengdar fréttir

Leyfir sér að vera vongóður um að Birna finnist í dag

Grímur Grímsson, sem stýrir rannsókn lögreglunnar á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, sem hefur verið saknað í heila viku, kveðst vongóður um að umfangsmikil leit sem hófst í morgun og standa mun í allan dag skili því að Birna finnist.

Leitin að Birnu: Stefna á að leysa 2000 verkefni um helgina

Þorsteinn G. Gunnarsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir þetta umfangsmestu leit sem Landsbjörg hefur farið í. Björgunarsveitarfólk eru um 500 talsins. Lagt verður áherslu á svæði frá Borgarnesi að Selfossi og allan Reykjanesskagann. Áherslan er fyrst of fremst lögð á vegi og vegaslóða á þessu svæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×