Innlent

Rannsókn tefst í fjárkúgunarmáli á hendur forsætisráðherra

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Systurnar bíða málalykta vegna tilraunar til að kúga fé úr fyrrverandi forsætisráðherra.
Systurnar bíða málalykta vegna tilraunar til að kúga fé úr fyrrverandi forsætisráðherra.
Rannsókn á meintri fjárkúgun systranna Malínar Brand og Hlínar Einarsdóttur á hendur Helga Jean Claessen er enn á borði rannsóknarlögreglu og mun líklega verða í nokkrar vikur til viðbótar.

Runólfur Þórhallson yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir það vera vegna þess að síma og tölvugögn hafi reynst mun umfangsmeiri yfirferðar en reiknað var með.

Héraðssaksóknari mun bíða með að gefa út ákæru á hendur systrunum fyrir fjárkúgun á hendur fyrrverandi forsætisráðherra, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þar til rannsókn þessarri er lokið. Meginreglan er að afgreiða öll mál á sama sakborning saman og er það sérstaklega mikilvægt ef gefin er út ákæra.

Verði hins miklar tafir á rannsókn lögreglu gæti saksóknari ákveðið að afgreiða málin sitt í hvoru lagi.

Rannsókn lögreglu á tilraun systranna til að kúga fé úr Sigmundi Davíð lauk í október á síðasta ári og var málið þá sent til ríkissaksóknara. Um áramótin færðist málið til héraðssaksóknara þegar lögum um meðferð sakamála var breytt.

Það var síðasta vor sem systurnar sendu bréf á heimili forsætisráðherra þar sem þær höfðu í hótunum og kröfðust peninga. Þær voru handteknar í júní þegar þær hugðust sækja féð.

Nokkrum dögum síðar kærði Helgi Jean sem er fyrrverandi samstarfsmaður Hlínar systurnar þær systur fyrir fjárkúgun. Helgi greindi frá því að þær hefðu sakað hann um kynferðisbrot og krafist peninga gegn því að leggja ekki fram kæru til lögreglu. Meðal sönnunargagna var upptaka af samtali Helga við Malín.

Malín sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hún viðurkenndi að hafa tekið við peningunum en sagði að það hafi hún gert fyrir hönd systur sinnar. Þá kærði Hlín manninn fyrir nauðgun.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. apríl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×