Innlent

Rannsókn á Hraunbæjarmálinu að ljúka

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
VÍSIR/VILHELM
Ríkissaksóknari fær í hendur gögn vegna rannsóknar tæknideildar vegna skotárásarinnar í Hraunbæ á fimmtudaginn.  Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari staðfesti þetta við fréttastofu.

Í kjölfarið verður farið yfir öll gögnin og ákvörðun tekin um afgreiðslu þess. Að því loknu verður gerð opinberlega grein fyrir niðurstöðum rannsóknarinnar og afgreiðslu málsins. Meðferð málsins mun taka einhverjar vikur.

Umsátursástand varð í Hraunbænum í byrjun desember þegar karlmaður skaut úr haglabyssu úr íbúð sinni. Þegar lögreglan kom á vettvang skaut maðurinn á hana og gengu skot milli lögreglunnar og mannsins. Lögreglan skaut á manninn sem lést af völdum skotsáranna. Þetta var í fyrsta skipti sem maður lætur lífið af völdum skotvopna í átökum við lögreglu hér á landi. 

Rannsakendur við Tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sinntu tæknirannsóknunum. 


Tengdar fréttir

"Hann hótaði að gera þetta fyrir nokkrum mánuðum"

Systur Sævars Rafns Jónassonar, sem lést eftir að hafa skipst á skotum við lögreglu í gær, segja hann hafa hótað aðgerðunum nokkrum mánuðum áður en hann lét til skarar skríða.

Íbúi við Hraunbæ: Heyrði um fimmtíu skot

„Það voru fjörutíu löggur fyrir utan. Ég hafði engar áhyggjur af þessu,“ segir íbúi við Hraunbæ, þar sem lögregla yfirbugaði byssumann í morgun.

Umsátursástand í Árbæ - skotið á lögreglumenn

Umsátursástand er í Árbæjarhverfi í Reykjavík þar sem maður virðist hafa skotið af byssu. Allt tiltækt lið lögreglu er á staðnum og hefur verið opnuð fjöldahjálparmiðstöð fyrir íbúa á svæðinu sem hafa verið látnir yfirgefa heimili sín. Maðurinn virðist staddur í blokk í Hraunbænum. Stóru svæði í hverfinu hefur verið lokað.

Myndband: Lögreglumenn skjóta á íbúð mannsins

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá sérsveitarmenn frá lögreglunni þegar aðgerðin í Árbæ stóð sem hæst. Meðal annars sést hvar lögreglumenn skjóta að því er virðist reyk- eða táragassprengjum inn í íbúð mannsins sem hafði lokað sig af í íbúð sinni.

Búið að yfirbuga manninn

Búið er að yfirbuga manninn sem skaut af byssu við Árbæ í morgun og er búið að aflétta lokun sem var í stórum hluta hverfisins. Lögreglan tilkynnti íbúum sem höfðu verið fluttir í Árbæjarkirkju þetta nú fyrir skömmu. Ekki er vitað hvort maðurinn sé særður.

Afhverju var þessi maður með byssu?

Tvær dagmömmur, sem voru meðal nágranna skotmannsins, segja að eitthvað mikið sé að kerfinu þegar fársjúkur maður fær íbúð innan um barnafjölskyldur. Þær spyrja hvernig standi á því að svona maður hafi byssu undir höndum.

"Harmsaga veiks manns“

Systir Sævars Rafns Jónassonar segir hann hafa fundið það að hann væri fyrir alls staðar og ekkert væri hlustað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×