Innlent

Rannsakendur Malaysian flugvélarinnar fullsaddir á bardögum

Heimir Már Pétursson skrifar
Rannsakendum gengur illa að komast að flaki Malaysian flugvélarinnar vegna átaka á svæðinu. Enn á eftir að safna saman líkamsleifum farþega í brakinu.

Íbúar á átakasvæðunum í austur Úkraínu reyna nú margir að komast þaðan burt, enda aðstæður ömurlegar. Undanfarna daga hafa verið hörð átök við bæinn Shakhtarsk og þaðan lá straumur flóttafólks í dag.

„Þetta var hræðilegt, við földum okkur í kjöllurum, börnin grétu,  þau voru hrædd, það var ekkert  rafmagn, ekkert, þetta var martröð,“ sagði Olga íbúi í Shakhtarsk á flótta úr bænum.

Julie Bishop utanríkisráðherra Ástralíu hafði vonað að rannsakendur gætu unnið óáreittir við brak Malaysian flugvélarinnar í dag.

„Forsætisráðherrann, Tony Abbott, hefur verið í sambandi við Pútín forseta nokkrum sinnum og við vonum að Rússar nýti áhrif sín hjá aðskilnaðarsinnunum  til að tryggja að við fáum óhindraðan aðgang að svæðinu,” sagði Bishop á fréttamannifundi í morgun.

Utanríkisráðherranum varð ekki að ósk sinni því fulltrúar ÖSE og rannsakendur þurftu frá að hverfa í dag vegna átaka í námunda við brakið.

„Eins og þið sjáið komum við  fljótt aftur frá svæðinu. Við vorum stöðvuð í bænum Shakhtarsk á leiðinni að slysstaðnum. Við urðum að stoppa því það var skothríð og okkur skilst að það hafi verið stórskotalið mjög nálægt,” sagði Alexander Hug talsmaður Öryggis og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, í dag.

Hann segir að menn verði að standa við loforð um vopnahlé svo hægt sé að vinna við brakið.

„Þeir verða að skilja að þeir verða að leggja niður vopn, vegatálmar verða að hverfa og við og sérfræðingarnir verða að hafa óheftan aðgang að staðnum,  án truflunar og áhættu svo við getum haldið  starfi okkar áfram. Á staðnum eru enn þá  líkamsleifar, lík og brak. Þarna er verk óunnið sem aðeins er hægt að vinna ef vopnin hafa verið lögð niður og við erum ekki í hættu á leiðinni þangað. Við erum orðin leið á að láta trufla okkur með skotbardögum þótt vopnahlé hafi verið samþykkt.  Þakka ykkur fyrir,” sagði Hug.


Tengdar fréttir

Spjótin beinast nú að Rússlandi

Bandaríkjaforseti segir ábyrgð Rússa mikla á að ekki hafi tekist að koma á friði í Úkraínu. Kallar eftir ákveðnum skrefum í friðarátt og boðar samráð þjóðarleiðtoga um næstu skref. Úkraínumenn segja aðskilnaðarsinna studda af Rússum ábyrga fyrir árásinni.

Flugskeytinu skotið frá Austur-Úkraínu

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir loftvarnareldflauginni sem grandaði malasísku farþegavélinni í gær hafi verið skotið frá landsvæði í austurhluta Úkraínu sem er á valdi aðskilnaðarsinna.

Gífurleg blóðtaka fyrir HIV-samfélagið

Framkvæmdastjóri HIV á Íslandi segir óvíst hvort að lykilinn að lækningu á veirunni hafi tapast þegar þegar tugir HIV sérfræðinga fórust með malasísku flugvélinni á fimmtudag.

Óraunhæft að senda vopnað herlið til Úkraínu

Yfirvöld í Hollandi því hætt við að senda sérfræðinga á svæðið eins og til stóð, en alls létust 193 hollenskir ríkisborgarar þegar vél Malaysia airlines var grandað.

Farþegaþota með 295 farþegum innanborðs hrapar í Úkraínu

Boeing-vél malasíska flugfélagsins Malaysian Airlines á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur var skotin niður á landamærum Úkraínu og Rússlands, samkvæmt heimildum Interfax. 295 farþegar voru um borð og eru allir taldir af.

Mesta hörmung í flugsögu Hollands

Forsætisráðherra Úkraínu fullyrðir að rússneskir hryðjuverkamenn hafi skotið farþegaþotu Malaysina flugfélagsins niður. Forsætisráðherra Hollands krefst ítarlegra alþjóðlegrar rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×