Innlent

Rannsaka þyrluslys

Rannsóknanefnd samgönguslysa og lögreglan á Hvolsvelli rannsaka nú hvað olli því að þyrla frá Norðurflugi, með þrjá kvikmyndatökumenn og flugmann um borð, hlekktist á við lendingu á Eyjafjallajökli í gær.

Þeir sluppu allir ómeiddir, en þyrlan mun vera nokkuð skemmd.  Óhappið varð nálægt gosstöðvunum frá árinu 2010. Ekkert liggur fyrir um tildrög og heldur ekki hvort hægt verður að gera við þyrluna á staðnum, eða hvort flytja þarf hana ofan af jöklinum. Kvikmyndatökumennirnir munu hafa verið að leita að hepplegum tökustöðum fyrir erlent kvikmyndafyrirtæki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×