Innlent

Rannsaka skyrgerilinn nánar

svavar hávarðsson skrifar
Skyrið er öllum þekkt en ekki fullrannsakað.
Skyrið er öllum þekkt en ekki fullrannsakað.
Sala Mjólkursamsölunnar á skyri á Norðurlöndunum jókst um 85% á síðasta ári og er nú um 13.000 tonn þegar allt er talið.

Þetta kemur fram í frétt þar sem kynntur var fyrir helgi samstarfssamningur MS og Matís til fimm ára um rannsóknir á skyrgerlum og mysu.

Full ástæða er talin til að rannsaka frekar íslenska skyrgerilinn og sérstöðu hans og hvernig nýta megi hann til að gera skyrið að enn verðmætari útflutningsvöru en það er í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×