Viðskipti innlent

Rannsaka hvort Síminn hafi brotið lög

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Deilur fjarskiptarisanna hafa staðið yfir í nokkurn tíma.
Deilur fjarskiptarisanna hafa staðið yfir í nokkurn tíma. vísir
Póst- og fjarskiptastofnun hyggst með ítarlegum hætti rannsaka hvort Síminn hafi brotið lög með því að hafa beint viðskiptavinum sínum að eigin fjarskiptaneti. Það er gert að beiðni Vodafone og stofnað hefur verið sérstakt mál sem snýr að deilu fjarskiptarisanna tveggja.

Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar þess sem Síminn fór fram á að stofnunin myndi skera úr um hvort þjónustuhættir hjá Vodafone er varða Tímavél og Frelsi teljist til línulegrar eða ólínulegrar myndmiðlunar. Póst- og fjarskiptastofnun tók þó ekki afstöðu til málsins og sagði þessar deilur eiga heima fyrir dómstólum.

„Ljóst er að ákvörðun um þetta álitamál þarf að taka að vel athuguðu máli og í kjölfar ítarlegrar rannsóknar, auk þess sem veita þarf aðilum færu á að tjá sig og koma sjónarmiðum sínum að áður en slík ákvörðun er tekin. Áður en slík ákvörðun yrði tekin þyrfti að mati PFS ennfremur að vera fullreynt hvort samningar geti tekist á milli félaganna um hina hliðruðu(ólínulegu) dagskrá,“ segir í ákvörðun stofnunarinnar. Ljóst sé að meðferð málsins geti tekið nokkurn tíma, nái aðilar ekki sáttum.

Þá fór Síminn fram á að lögbann yrði sett á Vodafone vegna dreifingar á sjónvarpsefni Skjás eins eftir að rekstrarformi stöðvarinnar var breytt þannig að áskrifendur geti horft endurgjaldslaust á dagskrána í línulegri dagskrá. Það var samþykkt af sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu um miðjan desember.

Lokað var fyrir sjónvarpsstöðvar hjá viðskiptavinum Vodafone sem nýttu sér áskriftapakka Skjás heims á vegum Símans nú á mánudag. Forsvarsmenn Símans segjast hafa gefið Vodafone hálfs árs fyrirvara, en hvorugur aðili lét viðskiptavini vita af fyrirhuguðum breytingum. Vodafone sendi svo frá sér tilkynningu þess efnis í gær.

Deilur fjarskiptarisanna hafa staðið yfir í nokkurn tíma. Í mars síðastliðnum krafði Síminn Vodafone um fjögur hundruð milljónir króna vegna meintrar ólögmætrar notkunar á vörumerkinu Tímaflakk. Nokkrum dögum síðar breytti Vodafone heitinu á Tímaflakki í Tímavél en málið er þó enn í ferli.


Tengdar fréttir

Tímaflakk fari fyrir dómstóla

Deila Vodafone og Símans um tímaflakk á heima fyrir dómstólum en ekki hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Stofnunin telur það ekki vera innan valdsviðs síns að úrskurða um málið og vísaði frá kæru Símans. Deilan snýr einna helst að dreifingu Vodafone á hliðruðu áhorfi á SkjáEinum sem Síminn fékk lögbann á í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×