Innlent

Rannsaka hótun í garð lögreglustjóra

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Konan á að hafa hótað lögreglustjóranum lífláti í gegnum samfélagsmiðla.
Konan á að hafa hótað lögreglustjóranum lífláti í gegnum samfélagsmiðla. vísir/pjetur
Kona er grunuð um að hafa haft í hótunum við lögreglustjórann á Suðurlandi og aðra starfsmenn embættisins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er vararíkissaksóknari með málið á borði hjá sér og mun fela öðru lögregluembætti rannsókn málsins. Þetta staðfestir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi. Oddur segir að lögreglan á Suðurlandi sé vanhæf til þess að rannsaka málið vegna tengsla.

Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hótaði konan lögreglustjóranum og öðrum starfsmönnum embættisins líkamsmeiðingum og lífláti í gegnum samfélagsmiðla.

Atvikið átti sér stað í síðustu viku og var framkvæmd húsleit á heimili konunnar á Selfossi síðastliðinn miðvikudag. Konan var handtekin í kjölfarið og færð til yfirheyrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er konan fædd árið 1963 og er því rúmlega fimmtug. Hún hefur áður komið við sögu lögreglu. Konan gæti átt yfir höfði sér átta ára fangelsisdóm fyrir brot gegn valdstjórninni.

„Það koma alltaf upp svona tilvik reglulega og ég myndi segja að hótanir í garð lögreglu væru frekar algengar,“ segir Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur hjá embætti ríkislögreglustjóra. Hann bætir því við að vel sé fylgst með öryggi og öryggistilfinningu lögreglumanna. „Við reynum að bæta öryggi eins og við getum.“

Þá segir Ólafur Örn að embætti ríkissaksóknara bjóði starfsmönnum sem verða fyrir hótunum upp á stuðning á kostnað embættisins. „Það eru oftast sálfræðitímar.“

Þá er stuðningur einnig í boði fyrir fjölskyldu þess sem verður fyrir hótunum. „Maki og börn þess aðila sem verður fyrir hótunum fá einnig aðstoð sérfræðinga eftir slík atvik.“

Niðurstöður könnunar sem embætti ríkislögreglustjóra gerði árið 2010 sýna að um 70 prósent lögreglumanna hafa orðið fyrir hótun í vinnu og 26 prósent utan vinnutíma vegna starfs síns. Könnunin byggir á svörum 397 lögreglumanna. Þá höfðu um 40 prósent lögreglumanna orðið fyrir ofbeldi í starfi og þrjú prósent utan vinnutíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×