Erlent

Rannsaka dularfullt hvarf norskrar konu í Suður-Afríku

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Marie Sæther Østbø er 21 árs og stundar nám í stjórnmálafræði við háskóla í Frakklandi.
Marie Sæther Østbø er 21 árs og stundar nám í stjórnmálafræði við háskóla í Frakklandi. Mynd/Sea Rescue South Africa
Ungrar konu frá Noregi, sem stödd var í Suður-Afríku í fríi með vinum sínum, hefur verið saknað síðan í gærkvöldi. Umfangsmikilli leit var hrint af stað vegna hvarfs hennar í gær en munir í hennar eigu hafa fundist á víðavangi.

Síðast sást til hinnar 21 árs Marie Sæther Østbø um klukkan 18:15 í suður-afríska bænum Sedgefield á fimmtudag að staðartíma. Um það leyti náðust af henni myndir úr öryggismyndavélum þar sem hún sést ganga frá veitingastað, sem hún hafði borðað á fyrr um daginn, og í átt að ströndinni. Síðan hefur ekkert til hennar spurst, að því er fram kemur í frétt norska dagblaðsins Verdens Gang.

Sedgefield er suður-afrískur strandbær mitt á milli borganna Port Elizabeth og Cape Town.Mynd/Google Eart
Østbø stundar nám í Frakklandi en hefur dvalið undanfarna daga í Suður-Afríku ásamt hóp samnemenda sinna. Tilkynnt var um hvarf hennar stuttu eftir að hún mætti ekki til kvöldverðar með samferðafólki í gærkvöldi.

Hafa fundið skó og farsíma í eigu Østbø

Lögregla og landhelgisgæsla í Sedgefield voru ræstar út til leitar strax í gær og beindust sjónir leitarmanna að ströndinni og sjónum í kring. Leit að Østbø hófst svo að nýju klukkan 8 á föstudagsmorgun og gert er ráð fyrir að leitað verði þangað til dimmir. Erfiðar aðstæður eru á vettvangi, að sögn talsmanns suður-afrísku lögreglunnar, en þungt er í sjóinn og mikill öldugangur. Þá hafa kafarar, þyrlur og leitarhundar verið kallaðir út við leitina.

Nokkrir munir, sem taldir eru hafa verið í eigu Østbø, hafa fundist við leitina, þ.á.m. skópar og farsími. Þá var Østbø einnig talin eigandi húfu sem fannst á sama stað og skórnir og síminn. Nú hefur hins vegar komið í ljós að húfan er ekki eign Østbø.

Þá sagði faðir Østbø í samtali við norska ríkisútvarpið NRK í gær að einblínt væri á tvo möguleika við leitina. Annað hvort hafi Østbø stungið sér til sunds fyrir kvöldmat og borist með straumum á haf út eða að henni hafi verið rænt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×