Innlent

Rangt að sótt sé að gömlum húsum í miðborginni

Heimir Már Pétursson skrifar
Formaður skipulagsráðs borgarinnar fagnar áhuga forsætisráðherra á skipulagi miðborgarinnar. Það sé hins vegar rangt að sótt sé að gömlum timburhúsum í borginni og hann minnir á að ríkið eigi sjálft holur og reiti í borginni sem staðið hafi óbyggðir lengi.

Uppbygging í miðborginni fer eftir samþykktu deiliskipulagi en ljóst er að miðborgin mun taka miklum breytingum á næstu árum vegna fyrirhugaðra byggingaframkvæmda víðs vegar á miðborgarsvæðinu.

Miklar umræður hafa verið um það hús sem rísa á á lóð Íslandsbanka eftir að búið er að rífa þá byggingu sem fyrir er. Húsið sem á að byggja er í allt öðrum stíl en húsin sitthvoru megin við.

Formaður skipulagsráðs segir fagnaðarefni að forsætisráðherra sýni borginni og miðborginni áhuga. Það sama verði ekki sagt um marga þingmenn Reykjavíkur.

„Ég verð hinsvegar að segja að ég er ekki sammála því sem að hann segir um að hér sé verið að sækja að gömlum timburhúsum. Það er bara rangt. Það hefur átt sér stað mikið starf í því að vernda og gera upp gömul timburhús. Ekki síst hérna í norðanverðu Skólavörðuholti. Ég er líka ósammála þeirri hugmynd sem hann setur fram um að byggja stórt timburhótel á Ingólfstorgi. Ég held að það sé ekki góð hugmynd,“ segir Hjálmar Jónsson.

Hjálmar segir það ágætis hugmynd að nýtt hús á Íslandsbankareitnum kallist á við húsin í kring enda sé ekki búið að ákveða að byggja það hús sem sýnt hafi verið í fjölmiðlum og enn sé verið að skoða kosti.

„Menn verða að velja sér sjónarhorn og mælikvarða. Hérna í Vonarstræti eru líka mjög flott steinsteypuhús, annað teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Það má líka nota það sem mælikvarða. En þegar við erum komin út í svona deilur um fagurfræði, þá er oft erfitt að finna sameiginlega lausn.“

Forsætisráðherra hafi haft tækifæri sem varaformaður í umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar á sínum tíma til að hafa áhrif á skipulag lóða við Tollhúsið og Hörpu en ekki gert það. Ráðherra gæti hins vegar litið sér nær varðandi stóra helgunarreiti Alþingis og ríkisins í miðborginni.

„Þar sem ekkert hefur gerst. Ég er að tala um risastóra malarlóð beint fyrir framan ráðhúsið við Tjarnargötu og Vonarstræti sem er orðinn einhver lager fyrir verktaka. Ég er að tala um risastórar auðar lóðir við Sölvhólsgötu og holuna sem að hefur verið kölluð Hola hinna íslensku fræða, við Suðurgötuna. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×