Fótbolti

Randers vann sinn fyrsta leik í tvo mánuði

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elmar og félagar unnu sinn fyrsta leik síðan 20. febrúar.
Elmar og félagar unnu sinn fyrsta leik síðan 20. febrúar. mynd/heimasíða randers
Þrír leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Theodór Elmar Bjarnason lék allan leikinn fyrir Randers sem vann öruggan sigur á FC Köbenhavn á heimavelli. Lokatölur 3-0, en Randers er í 3. sæti deildarinnar með 38 stig.

Ögmundur Kristinsson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Randers sem hafði ekki unnið leik síðan 20. febrúar fyrir leikinn í dag.

Björn Bergmann Sigurðarson og Rúrik Gíslason voru báðir í byrjunarliði FCK sem er í 3. sætinu með 49 stig.

Bröndby vann öruggan 4-0 sigur á Vestsjælland á heimavelli.

Hólmbert Aron Friðjónsson sat allan tímann á varamannabekk Bröndby sem er í 4. sæti deildarinnar með 38 stig.

Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn fyrir Vestsjælland sem situr í næstneðsta sæti deildarinnar. Frederik Schram sat allan tímann á varamannabekknum hjá liðinu.

Þá vann AaB 0-3 sigur á SönderjyskE á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×