Fótbolti

Randers ósigrað í síðustu sjö leikjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur Kristjánsson er að gera góða hluti með Randers.
Ólafur Kristjánsson er að gera góða hluti með Randers. vísir/getty
Lærisveinar Ólafs Kristjánssonar í Randers gerðu 1-1 jafntefli við Esbjerg í fyrsta leik 9. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Randers hefur nú leikið sjö leiki í röð án þess að tapa. Liðið er í 3. sæti deildarinnar með 18 stig, jafn mörg og Bröndby og FC Köbenhavn en lakari markatölu.

Hannes Þór Halldórsson var á sínum stað í marki Randers. Hann þurfti að hirða boltann úr netinu á 32. mínútu þegar Andreas Nordvik kom Esbjerg yfir.

Staðan var 1-0 í hálfleik og allt fram á 78. mínútu þegar Viktor Lundberg jafnaði metin og tryggði gestunum stig.

Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn fyrir Esbjerg sem er í 12. sæti deildarinnar með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×