Handbolti

Ramune skaut Árbæinga í kaf

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ramune skoraði tíu mörk.
Ramune skoraði tíu mörk. vísir/ernir
Ramune Pekarskyte skoraði tíu mörk þegar Haukar báru sigurorð af Fylki, 25-20, í 9. umferð Olís-deildar kvenna í dag.

Með sigrinum minnkuðu Haukar forskot Stjörnunnar í 2. sætinu niður í eitt stig.

Haukar leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 13-9, og létu þá forystu ekki af hendi í seinni hálfleik.

Thea Imani Sturludóttir skoraði sjö mörk fyrir Fylki sem er enn með sín tvö stig á botni deildarinnar.

Mörk Hauka:

Ramune Pekarskyte 10, Elín Anna Baldursdóttir 4, Maria Ines Da Silva Pereira 4, Sigrún Jóhannsdóttir 3, Ragnheiður Ragnarsdóttir 2, María Karlsdóttir 1, Berta Rut Harðardóttir 1.

Mörk Fylkis:

Thea Imani Sturludóttir 7, Hildur Björnsdóttir 4, Christine Rishaug 3, Þórunn Friðriksdóttir 3, Þuríður Guðjónsdóttir 2, Vera Pálsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×