Enski boltinn

Ramsey vildi ekki taka í höndina á Piers Morgan

Ramsey og Morgan.
Ramsey og Morgan. vísir/getty
Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan er einn þekktasti stuðningsmaður Arsenal og liggur venjulega ekki á skoðunum sínum um félagið.

Hann hefur lengi barist fyrir því að Arsene Wenger verði rekinn frá félaginu og svo hefur hann líka verið óhræddur við að láta leikmenn liðsins heyra það.

Eftir leik Arsenal og Chelsea um helgina þá mættust Morgan og Aaron Ramsey. Morgan, sem hefur nú ekki alltaf talað vel um Ramsey, rétti Ramsey höndina en leikmaðurinn hafði ekki áhuga á að heilsa.

„Mætti hvað hann nú heitir eftir leik. Bauð honum handarband friðarins. Hann afþakkaði," skrifaði Morgan á Twitter.

Morgan hafði áður skrifað að Ramsey væri byrði á Arsenal-liðinu og Ramsey hafði líklega ekki gleymt því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×