Fótbolti

Ramsey sá rautt í markalausu jafntefli

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Oliver Giroud í baráttunni gegn Besiktas í kvöld.
Oliver Giroud í baráttunni gegn Besiktas í kvöld. vísir/getty
Arsenal gerði markalaust jafntefli við tyrkneska liðið Besiktas á útivelli í kvöld í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Lundúnaliðið fékk nokkur ágæt tækifæri til að skora í leiknum, en Alex Oxlade-Chamberlain átti skot í innanverða stöngina á síðustu mínútum leiksins.

Arsenal lék manni færra síðustu tíu mínútur leiksins eftir að Aaron Ramsey fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Hann verður ekki með í seinni leiknum.

Lærisveinar ArseneWengers þurfa á sigri að halda í seinni leiknum til að komast áfram, en skori bæði lið í jafntefli á Emirates-vellinum fer Besiktas í riðlakeppnina á fleiri mörkum skoruðum á útivelil.

VÍSIR/GETTY
VÍSIR/GETTY



Fleiri fréttir

Sjá meira


×