Fótbolti

Ramsey hetja Arsenal

Ramsey fagnar marki sínu með Özil.
Ramsey fagnar marki sínu með Özil.
Arsenal er í góðum málum í F-riðli Meistaradeildar Evrópu eftir frábæran 0-1 útisigur á þýska liðinu Dortmund í kvöld.

Enn eina ferðina var það Aaron Ramsey sem skoraði fyrir Arsenal. Markið kom með skalla í síðari hálfleik.

Arsenal á toppi riðilsins með níu stig. Napoli er með sama stigafjölda en Dortmund er með sex stig. Tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×