Fótbolti

Ramsey hefur tekið ótrúlegum framförum

Ramsey og Özil fagna sigurmarki kvöldsins.
Ramsey og Özil fagna sigurmarki kvöldsins.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, fagnaði gríðarlega í kvöld. Hann mátti það vel því strákarnir hans voru að vinna leik á gríðarlega erfiðum útivelli.

Aaron Ramsey skoraði eina mark leiksins í útisigri gegn Dortmund.

"Ég var ánægðastur með einbeitingu minna manna í kvöld. Við vorum nefnilega undir pressu allan leikinn og þá verða menn að halda einbeitingu. Það gerðu strákarnir," sagði Wenger.

"Við sköpuðum okkur líka færi. Vorum ekki bara að verjast. Það góð færi að við hefðum hæglega getað skorað fleiri mörk."

Aaron Ramsey var slakur á síðustu leiktíð en hefur spilað eins og annar leikmaður í vetur.

"Fyrir ári síðan hélt ég að það yrði erfitt fyrir Aaron að skora mörk en hann hefur tekið ótrúlegum framförum. Strákurinn má vera stoltur af sjálfum sér."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×