Enski boltinn

Ramsey frá næstu þrjár vikurnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aaron Ramsey meiddist í leiknum gegn Southampton um helgina.
Aaron Ramsey meiddist í leiknum gegn Southampton um helgina. vísir/getty
Aaron Ramsey verður frá keppni næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla aftan í læri.

Ramsey meiddist í 1-1 jafntefli Arsenal og Southampton á sunnudaginn.

Ramsey hefur leikið 15 leiki með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í vetur og skoraði þrjú mörk.

Arsenal á eftir að spila fjóra leiki í ensku úrvalsdeildinni á þessu ári auk leiks gegn West Ham í 8-liða úrslitum deildabikarsins.

Arsenal mætir Newcastle United á Emirates á morgun. Skytturnar eru í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×