Fótbolti

Ramos verður frá í mánuð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rams haltrar hér af velli í leiknum gegn Albaníu.
Rams haltrar hér af velli í leiknum gegn Albaníu. vísir/afp
Landsleikur Albaníu og Spánar endaði ekki vel fyrir spænska miðvörðinn, Sergio Ramos.

Hann fór meiddur af velli er hann meiddist á hné. Nú hefur komið í ljós að það mun taka hann mánuð að jafna sig á meiðslunum.

Það þýðir að Ramos gæti misst af fjórum leikjum með Real Madrid. Þar á meðal borgarslag gegn Atletico Madrid.

Hann myndi einnig missa af leik í Meistaradeildinni gegn Legia Varsjá og er tæpur að ná landsleik Spánverja gegn Makedóníu þann 12. nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×