Fótbolti

Ramos lá yfir tilboði frá Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sergio Ramos.
Sergio Ramos. vísir/getty
Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, íhugaði það alvarlega síðasta sumar að ganga til liðs við Man. Utd.

Það var mikið rætt um framtíð Ramos síðasta sumar og mörg lið sýndu honum áhuga. Eftir að hafa íhugað stöðu sína vel skrifaði hann undir langan samning við Real Madrid.

„Ég var með tilboð frá Man. Utd og um tíma íhugaði ég að skipta um umhverfi. Á endanum var Real Madrid í fyrsta sæti hjá mér. Ég heyrði samt aldrei í Chelsea þó svo það hafi verið skrifað um það,“ sagði Ramos.

„Það er alltaf gaman að fá áhuga frá stórum liðum því það er viðurkenning á því að þú sért að standa þig. En Real vildi halda mér og ég vildi vera áfram. Eins og staðan er í dag sé ég ekki annað fyrir mér en að ég klári ferilinn hérna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×