Ramminn í ruslið?

Fréttablaðið Fastir pennar 14. febrúar 2012 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Rammaáætlun um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma átti að vera búið að afgreiða sem ályktun frá Alþingi fyrir janúarlok. Enn er málið þó ekki komið á dagskrá þingsins. Ýmis ákvæði draganna sem lögð voru fram til umsagnar á síðasta ári standa einkum í þingmönnum Vinstri grænna. Þannig er gert ráð fyrir að ráðast í virkjanir í neðri hluta Þjórsár, sem margir í þingflokki VG geta ekki hugsað sér. Fleiri svæði, sem samkvæmt drögunum eru í nýtingarflokki, eru umdeild.

Með drögunum að rammaáætlun var stigið stórt skref í þágu náttúruverndar. Hugsunin að baki áætluninni var að draga saman fáanleg gögn um hina ýmsu virkjanakosti og meta þá út frá sjónarhornum orkunýtingar, náttúruverndar, ferðamennsku, efnahags- og samfélagsáhrifa og verndar fornleifa og menningarminja. Niðurstaðan af þessu mati er að aðeins um fjórðungur virkjanlegrar orku á landinu fer í nýtingarflokk. Það þætti einhverjum umtalsverður sigur náttúruverndar, enda var við gerð draganna gengið lengra í friðunarátt en verkefnisstjórn rammaáætlunar gerði upphaflega. Náttúran var látin njóta vafans.

Innan VG vilja menn hins vegar ganga lengra. Undanfarnar vikur hafa ýmis náttúruverndarsamtök einnig látið í sér heyra og vilja ganga miklu lengra í verndunarátt en gert er í drögunum. Í þessum málflutningi er algengt viðkvæði að komið sé nóg af virkjunum; Íslendingar hafi virkjað langt umfram eigin þarfir og meirihluti orkunnar fari til stóriðju, sem líka sé komið nóg af.

Frekari uppbygging stóriðju er reyndar eitt af tækifærum okkar til atvinnuuppbyggingar og hagvaxtar. Ákvörðun um að virkja ekki meira er um leið ákvörðun um að afþakka slíkan hagvöxt. Því er hins vegar ósvarað hvort talsmenn þessa sjónarmiðs telja að virkja mætti vegna annars konar starfsemi, til dæmis til að knýja gagnaver eða til að framleiða vetni á bíla- og skipaflota landsmanna.

Þeir sem vilja einfaldlega hætta að virkja eru um leið að segja að öll sú vinna, sem lögð hefur verið í rammaáætlun, hafi verið óþörf. Og að þeim hálfa milljarði króna sem fór í verkefnið hafi eins mátt henda út um gluggann. Þeir segja um leið að ekki sé mark takandi á allri þeirri gagnaöflun og mati vísindamanna, sem liggur að baki núverandi drögum. Verndunarsjónarmiðin hafi allan tímann átt að hafa hundrað prósent vægi, nýtingarsjónarmiðin núll.

Í Fréttablaðinu í gær sagðist Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra efins um að núlifandi kynslóð eigi að taka ákvarðanir um nýtingu virkjanakosta „í eitt skipti fyrir öll". Auðvitað er sú forgangsröð sem Alþingi ákveður ekki höggvin í stein. En hugmyndin með rammaáætlun var að skapa breiða sátt til langs tíma um það hvar skuli virkja og hvaða svæði skuli vernduð og að sú sátt byggist á vísindalegum gögnum og faglegu mati.

Ef ganga á þvert gegn þessum sjónarmiðum og láta þá pólitík að nú eigi að hætta að virkja á Íslandi ráða för, er um leið opnað fyrir möguleikann á að nýr þingmeirihluti með aðra afstöðu til virkjana krukki í rammaáætlunina að afloknum næstu kosningum eða kannski þarnæstu og endurraði orkukostum eftir sínu höfði.

Nú virðist full þörf á að menn rifji upp sjónarmiðin sem lágu upphaflega að baki því að ráðizt var í þetta mikla og nauðsynlega verkefni og láti þau ráða við afgreiðslu málsins.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Ramminn í ruslið?