Enski boltinn

Ramires dæmdur í fjögurra leikja bann

Ramires.
Ramires. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Ramires hjá Chelsea hefur lokið keppni í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili eftir að hafa fengið þungt bann í dag.

Hann var dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir að slá Sebastian Larsson, leikmann Sunderland, í leik liðanna á dögunum. Hann mun ekki áfrýja þessum úrskurði.

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, og aðstoðarmaður hans, Rui Faria, voru einnig kærðir fyrir sína hegðun í leiknum og á eftir að kveða upp dóm yfir þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×