Glamour

Ralph Lauren sagður klæða Melaniu Trump fyrir forsetavígsluna

Ritstjórn skrifar
Melania Trump mun líklega klæðast Ralph Lauren.
Melania Trump mun líklega klæðast Ralph Lauren. Glamour/Getty
Bandaríski fatahönnuðurinn Ralph Lauren, sem var yfirlýstur stuðningsmaður Hillary Clinton, er sagður ætla að klæða Melaniu Trump fyrir forsetavígsluna sem fer fram á morgun. Melania klæddist einnig kjól frá Ralph Lauren á kosningakvöldinu í nóvember. 

WWD greinir frá því að Ralph sé að sérsauma kjól fyrir forsetafrúnna til að klæðast á morgun. Talið er að 37.8 milljónir manna muni horfa á vígsluna í beinni á morgun en henni verður sjónvarpað víða um heim. 

Melania klæddist hvítum Ralph Lauren samfesting á kosningakvöldinu.Mynd/Getty





×