Innlent

Rakel Þorbergsdóttir nýr fréttastjóri Ríkisútvarpsins

Jakob Bjarnar skrifar
Rakel Þorbergsdóttir er nýr fréttastjóri Ríkisútvarpsins en ný framkvæmdastjórn hefur verið skipuð.
Rakel Þorbergsdóttir er nýr fréttastjóri Ríkisútvarpsins en ný framkvæmdastjórn hefur verið skipuð.
Rakel Þorbergsdóttir er nýr fréttastjóri Ríkisútvarpssins. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá RÚV. Rakel tekur við af Óðni Jónssyni, en hann hefur verið ráðinn til að sinna sérverkefnum á vegum stofnunarinnar.

Jafnframt eru kynntir til sögunnar nýir framkvæmdastjórar stofnunarinnar en Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri lét það verða sitt fyrsta verk, eftir að hann tók við af Páli Magnússyni, í síðasta mánuði að reka alla framkvæmdastjórnina á einu bretti. Nýir framkvæmdastjórar eru:

Rakel Þorbergsdóttir hefur verið ráðin fréttastjóri Ríkisútvarpsins. Rakel er með BA-gráðu í stjórnmálafræði og diplóma í hagnýtri fjölmiðlun frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í ljósvakafjölmiðlun (Broadcast Journalism) frá Emerson College í Boston. Rakel hefur fjórtán ára reynslu sem fréttamaður, vakstjóri og varafréttastjóri hjá RÚV en áður starfaði hún hjá Morgunblaðinu.

Þröstur Helgason hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Rásar 1. Þröstur er með BA-gráðu í íslensku og meistaragráðu í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hann hefur frá árinu 2009 stundað doktorsnám við sama skóla og verður doktorsvörn hans í sumar. Þröstur var ritstjóri Lesbókar Morgunblaðsins um átta ára skeið og hefur á undanförnum árum starfað m.a. sem stundakennari, þáttagerðarmaður og bókmenntagagnrýnandi.

Frank Þórir Hall hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Rásar 2. Frank er með BA-gráðu í heimspeki og grísku frá Háskóla Íslands og meistaragráðu frá Konunglegu listakademíunni í Haag í nýmiðlun og tónlist. Hann hefur starfað sem tónlistarmaður um tuttugu ára skeið, samið tónlist fyrir fjölda kvikmynda, dansverka og leiksýninga. Hann hefur einnig sinnt dagskrárgerð hjá RÚV á undanförnum árum og verið með dægurmálaþætti og tónlistarþætti. Frank hefur starfað sem listrænn ráðunautur við Borgarleikhúsið frá árinu 2008.

Skarphéðinn Guðmundsson hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Sjónvarps. Hann er með BA-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Skarphéðinn hefur starfað sem dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins frá árinu 2012, var áður dagskrárstjóri Stöðvar 2 frá árinu 2007 og upplýsingafulltrúi 365 miðla frá 2005. Hann starfaði áður á menningardeild Morgunblaðsins, sem blaðamaður og gagnrýnandi.

Anna Bjarney Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri rekstrar, fjármála og tækni. Anna er viðskiptafræðingur með kandídatspróf af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá sama skóla. Hún var framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs hjá Landsbankanum og forstöðumaður útibúaþróunar. Áður starfaði hún hjá Búnaðarbanka Íslands/Kaupþingi um árabil, m.a. sem forstöðumaður áætlana og rekstrareftirlits.

Hildur Harðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri samskipta-, þróunar- og mannauðssviðs. Hildur er með BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í fjölmiðla- og samskiptafræðum frá London School of Economics og MBA-gráðu frá London Business School. Hildur hefur starfað sem markaðsstjóri Borgarleikhússins frá árinu 2010 en starfaði áður m.a. í um áratug hjá The Henley Centre, fyrst sem ráðgjafi og síðar sem aðstoðarframkvæmdastjóri.

Ingólfur Bjarni Sigfússon hefur verið ráðinn vef- og nýmiðlastjóri Ríkisútvarpsins. Hann er með meistaragráðu í samanburðarstjórnmálum, blaðamennsku og bandarískum fræðum frá Universität Leipzig. Ingólfur Bjarni hefur starfað sem vef- og nýmiðlastjóri frá árinu 2013 og var þar áður fréttamaður, vakstjóri og varafréttastjóri hjá Ríkisútvarpinu frá 2006.

Margrét Magnúsdóttir hefur verið ráðin skrifstofustjóri Ríkisútvarpsins. Margrét er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað sem lögfræðingur á lögfræðisviði Mennta- og menningarmálaráðuneytisins frá árinu 2011. Þar hefur hún m.a. haft yfirumsjón með málefnum fjölmiðla, komið að þjónustusamningum við menningarstofnanir, gerð lagafrumvarpa og erlendum samskiptum, m.a. á vettvangi Evrópuráðsins.

Andrea Róbertsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Ríkisútvarpsins. Hún er með BA-gráðu í félags- og kynjafræði og meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Andrea hefur undanfarið ár starfað sem verkefnisstjóri hjá Hjallastefnunni en var áður forstöðumaður mannauðssviðs Tals frá árinu 2010-2013. Andrea hefur einnig víðtæka reynslu úr fjölmiðlum sem dagskrárgerðakona og framleiðandi.

Þeir sem fengu uppsagnarbréfið á sínum tíma voru Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri sjónvarps, Bjarni Kristjánsson fjármálastjóri, Eyjólfur Valdimarsson tæknistjóri, Óðinn Jónsson fréttastjóri, Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV, Magnús R. Einarsson dagskrárstjóri útvarps, Þorsteinn Þorsteinsson markaðsstjóri, Berglind G. Bergþórsdóttir mannauðsstjóri og Ingólfur Bjarni Sigfússon nýmiðla- og vefstjóri. Eins og sjá má eru þeir Skarphéðinn og Ingólfur Bjarni áfram úr þeim hópi.

Margir höfðu spáð því að Sigríður Hjaltalín Björnsdóttir yrði fyrir valinu í fréttastjórastarfið, en sú varð sem sagt ekki raunin. Hins vegar má sjá, ef að er gáð, að Magnús Geir hefur með sér úr leikhúsinu bæði þau Frank Hall og Hildi Harðardóttur, inn í yfirstjórn Ríkisútvarpsins, eins og einhverjir höfðu spáð til um.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×