Handbolti

Rakel Dögg: Landsliðssætið var orðinn fjarlægur draumur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rakel Dögg í leik með Stjörnunni.
Rakel Dögg í leik með Stjörnunni. Mynd/Vísir
Saga Rakelar Daggar Bragadóttur á sér fáar hliðstæður. Í dag var hún valin aftur í íslenska landsliðið, þremur árum eftir að hún fékk svo slæmt höfuðhögg á landsliðsæfingu að hún hætti í íþróttinni nokkrum mánuðum síðar.

Hún hefur farið sér hægt síðan hún ákvað að byrja aftur að æfa handbolta, stuttu eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn á síðasta ári. Síðan þá hefur allt gengið svo vel að hún hefur getað beitt sér af fullum krafti og er nú komin í landsliðið.

Sjá einnig: Rakel Dögg hætt: Ég bar alls engan kala til hennar

„Þetta er svakalega gaman. Ég er mjög ánægð og í raun stolt af þessu,“ sagði Rakel Dögg við Vísi í dag.

Það var í nóvember árið 2013 að hún fékk heilahristing eftir að hafa fengið bolta í höfuðið af stuttu færi. Afleiðingarnar voru það slæmar að hún gat varla gengið upp stiga með góðu móti, hvað þá stundað íþróttir.

Hún hafði þar að auki þurft að glíma við ýmis konar alvarleg meiðsli, svo sem beinbrot og krossbandsslit, og sá því þann kost vænlegastan að hætta, 27 ára gömul.

„Þetta er vissulega óvænt stefnubreyting á mínum ferli,“ segir hún enn fremur. „Landsliðssætið var fjarlægur draumur fyrir mjög stuttu síðan.“

Rakel Dögg í leik með landsliðinu.Vísir
Landsliðið fjarlægur draumur

Eftir barnsburð var markmið hennar að hreyfa sig á nýjan leik og í því skyni hóf hún að mæta á æfingar með félagi sínu, Stjörnunni.

„Eftir úrslitakeppnina í fyrra tók ég svo þá ákvörðun að fara inn í þetta af fullum krafti. Það hefur tekist. Ég hef verið hundrað prósent með á æfingum og sem betur fer hefur ekkert slæmt gerst.“

Sjá einnig: Leiðinlegt að hætta þegar þú gerir það ekki á þínum eigin forsendum

Hún hefur tekið lítil skref í bataferlinu en fyrst og fremst var markmiðð hennar að geta æft vel, komast í gott líkamlegt form og hjálpa liðinu hennar af fremsta megni. „Allt annað var bónus,“ segir hún.

„En þegar það fór að líða á tímabilið fór maður að hugsa hvort það væri mögulegt að fara aftur í landsliðið. Það var alltaf draumurinn enda hef ég ávallt verið afar stolt af því að spila fyrir íslenska landsliðið.“

Mynd/Stefán
Góð blanda í hópnum

Axel Stefánsson ræddi við Rakel Dögg, sem er einnig þjálfari 14 ára landsliðs kvenna, í haust og spurði hana þá út í stöðuna.

„Ég sagði honum að ég væri alltaf klár,“ segir Rakel sem segist vera bjartsýn fyrir komandi verkefni með landsiðinu. Það sé skipað sterkum leikmönnum - bæði reynsluboltum sem spila með sterkum atvinnumannaliðum og stórefnilegum leikmönnum sem spila í Olísdeild kvenna.

Sjá einnig: Rakel Dögg aftur í landsliðið

„Það er mikil ánægja með nýja þjálfarateymið og jákvæðni í hópnum. Það er ótrúlega gaman að sjá hversu margir af okkar bestu leikmönnum eru að spila með sterkum liðum í sterkum deildum. Birna Berg er að gera frábæra hluti í Meistaradeildinni, Karen hefur verið frábær í frönsku deildinni og svo framvegis.“

„Það eru margir flottir leikmenn að koma aftur inn í landsliðið og það býr til flotta blöndu með ungum leikmönnum.“

Er stundum skíthrædd

Rakel óttast ekki höfuðhögg frekar en önnur meiðsli. Íþróttaiðkun fylgi ávallt áhætta á meiðslum, hvort sem er hjá henni eða öðrum.

„Eftir því sem líður frá verður höfuðhögg númer tvö ekki jafn hættulegt. En það er ekki bara það sem ég er að velta fyrir mér. Ég hef gengið í gegnum alls konar meiðsli á mínum ferli og stundum er maður skíthræddur við að eitthvað alvarlegt gerist.“

„En þetta er áhætta sem allir íþróttamenn taka. Sjálf finn ég hversu mikið það gefur mér að spila handbolta og ég var tilbúin að leggja þetta á mig til að halda áfram.“


Tengdar fréttir

Rakel aðstoðar Ragnar

Rakel Dögg Bragadóttir hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í Olís-deild kvenna.

Enn ein meiðslin í landsliðinu

Hildur Þorgeirsdóttir meiddist á æfingu íslenska landsliðsins í gær og verður frá næstu vikurnar.

Leggur skóna á hilluna fyrir aldur fram

Landsliðskonan Rakel Dögg Bragadóttir hefur lagt skóna á hilluna vegna höfuðmeiðsla. Þetta tilkynnti hún á Fésbókarsíðu sinni í dag. Rakel er aðeins 27 ára gömul.

Rakel Dögg nýr landsliðsþjálfari

Handknattleikssamband Íslands hefur ráðið Stjörnukonuna Rakel Dögg Bragadóttur til starfa og verður hún ein af landsliðsþjálfurum sambandsins.

Rakel Dögg hætt: Ég ber alls engan kala til hennar

Rakel Dögg Bragadóttir, ein besta handboltakona landsins, tilkynnti í gær að hún væri hætt í handbolta vegna alvarlegra höfuðmeiðsla. "Áttaði mig á því eftir á hversu þungt höggið var í raun og veru,“ sagði hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×