Körfubolti

Rajon Rondo til Dallas

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Rajon Rondo hefur spilað vel með Boston í vetur.
Rajon Rondo hefur spilað vel með Boston í vetur. vísir/getty
Rajon Rondo, leikstjórnandinn magnaði sem hefur leikið með Boston Celtics allan sinn feril og varð NBA-meistari með liðinu árið 2008, er genginn í raðir Dallas Mavericks.

Fram kemur á vef ESPN að honum hafi verið skipt til Dallas ásamt framherjanum Dwight Powell en á móti fær Boston Brandan Wright, Jae Crowder og Jameer Nelson.

Boston fær einnig fyrsta valrétt Dallas í nýliðavalinu á næsta ári og valrétt í annarri umferðinni árið 2016. Dallas borgar Boston svo 12,9 milljónir dala til viðbótar.

„Tími minn í Boston hefur verið svo góður. Ég ólst upp í þessari borg sem körfuboltamaður og persóna. Ég elska stuðningsmennina sem eru þeir bestu í deildinni. Ég hlakka til að byggja upp eitthvað spennandi í Dallas,“ sagði Rondo á Twitter-síðu sinni í nótt.

Dallas er búið að vinna 19 leiki og tapa átta í deildinni og er í góðum málum í vesturdeildinni. Það mætir NBA-meisturum San Antonio Spurs á laugardaginn.

Með brotthvarfi Rondo frá Boston er nú allt byrjunarliðið sem vann meistaratitilinn árið 2008 farið. Paul Pierce og Kevin Garnett fóru til Brooklyn og Pierce svo til Washington í sumar. Ray Allen vann meistaratitilinn með Miami í fyrra og Kendrick Perkins fór til OKC.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×