Sport

Raj reynir að bjarga tennisvöllunum í Víkinni: Vilja sjá starfið byggt upp en ekki rifið niður

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Raj með syni sínum Rafni Kumar á sólríkum degi í Víkinni.
Raj með syni sínum Rafni Kumar á sólríkum degi í Víkinni. vísir/gva
Raj K. Bonifacius, þrefaldur Íslandsmeistari í tvíliðaleik í tennis og aðalmaðurinn á bakvið tennisdeild Víkings, reynir nú hvað hann getur að bjarga tennisvöllunum í Víkinni.

Aðalstjórn Víkings hefur tekið ákvörðun um að láta fjarlægja tennisvellina úr Víkinni í vor en þeir voru byggðir fyrir 31 ári. Raj kallar eftir aðstoð vefnum Betri Reykjavík þar sem hann vekur athygli á málinu.

„Vil vekja athygli íþróttaáhugamanna á ákvörðun aðalstjórnar Víkings að láta fjarlægja tennisvellina úr Víkinni núna í vor. Þessir vellir voru upphaflega byggðir af íbúum hverfisins og tennisáhugamönnum fyrir 31 ári. Þeir eru bæði partur af sögu hverfisins og stór hluti af sögu og þróun tennis hérlendis. Tennisdeild Víkings vonar auðvitað að þessi ákvörðun verði breytt og að aðstaða til tennisiðkunar þarna verði bætt,“ segir á betrireykjavik.is.

Vefurinn virkar þannig að hver sem er getur skrifað rök með og rök á móti. Þegar þessi frétt er skrifuð eru komin ellefu rök með því að halda völlunum en engin á móti.

„Fyrirmyndar hverfisfélög bjóða upp á fjölbreytt úrval íþrótta. Það er markmið tennsideildar Víkings núna í vor að efla grasrótarstarfsemi [...] Tennisdeild Víkings vill taka virkan þátt í þessum verkefnum ásamt okkar hefðbundna sumarstarfi en okkur vantar aðstöðu,“ segir Raj og fleiri eru sammála honum.

„Það er virkilega miður að sjá og heyra af þessari ákvörðun stjórnar Víkings,“ skrifar Bryndís Björnsdóttir. „Í fjölmörg ár hefur legið gullið tækifæri fyrir félagið að styrkja deildina innan Víkings [...] Tennisklúbburinn var mjög vel nýttur á sínum fyrstu árum þegar vellirnir voru í góðu ástandi og hefði klárlega getað verið svo áfram. Myndi vilja sjá starfið byggt upp frekar en rifið niður.“

Brynjar Már Karlsson bendir svo á að tennisvellirnir í Víkinni eru næst síðustu vellirnir sem eftir eru í höfuðborginni og engin áform eru um að byggja nýja. „Þetta er skammarlegt og á sama tíma hneykslanlegt að hugsa til þess að öll tennisiðkun Reykvíkinga skuli fara fram í Kópavogi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×