Golf

Ragnhildur um árangur Ólafíu: Spáir flóðbylgju af ungum nýjum kylfingum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnhildur Sigurðardóttir ræddi við Arnar Björnsson um afrek Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur í kvöldfréttum Stöðvar tvö.  Ólafía Þórunn tryggði sér eins og kunnugt er þátttökurétt á sterkustu mótaröð í heimi, LPGA-mótaröðinni.

Ragnhildur Sigurðardóttir er fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi og PGA-golfkennari en hún þekkir vel til Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur enda báðar úr GR.

„Það er talsvert mikill munur á stöðu hennar núna og á stöðu hennar þegar hún komst inn á Evróputúrinn. Tækifærin hennar eru meiri núna. Það er betur hugsað um nýliða á þessum túr heldur en á Evróputúrnum þannig að hún hefur meiri tækifæri,“ sagði Ragnhildur.

Þrátt fyrir glæsilegan árangur færist Ólafía Þórunn aðeins upp um eitt sæti á heimslistanum í golfi og er núna í 614. sæti á listanum sem birtur var í dag.  Sigurvegarinn, Jay Marie Green, færist niður um eitt sæti og er núna í 203. sæti.  Ólafía fékk aðeins tækifæri á sjö mótum í LET-mótaröðinni.

„Hún fékk fá tækifæri í fyrra og það er að hluta til ástæðan fyrir því að hún er ekki ofar á heimslistanum. Heimslistinn er sambland af útkomu átta kvennatúra á heimsvísu,“ sagði Ragnhildur.

Hvað heldur hún að þetta hafi að segja fyrir golfið á Íslandi?

„Ég er sannfærð um að það verði bylting í unglingastarfi þó svo að það sé búin að vera bylting undanfarin ár. Ég held að þetta þýði að það verði bara flóðbylgja af ungum nýjum kylfingum sem vilja ná lengra. Þau geta sett sér meiri metnað núna þegar þau sjá hvað hægt er að gera. Fullt af þessum krökkum okkar þekkja Ólafíu persónulega enda er Ísland lítið land,“ sagði Ragnhildur.

Ragnhildur hefur tröllatrú á Ólafíu Þórunni. Úthaldið kostar sitt en ferðalögin eru löng og það er stutt á milli móta.

„Eins hvernig gengur að fá styrktaraðila. Ég segi bara grípið gæsina á meðan hún gefst. Núna er tækifærið fyrir ykkur að reyna að ná í rassinn á henni Ólafíu og láta hana auglýsa fyrir ykkur,“ segir Ragnhildur og beinir orðum sínum til fyrirtækja á Íslandi.

Hvað er það sem gerir hans svona góða? „Hún hefur svo margt. Hún er ofsalega vel gefin og skipulögð. Hún er með mikinn metnað. Hún var afburðarnemandi í skóla. Ég held að hún geti bara allt sem henni langar til að gera,“ sagði Ragnhildur.

Það má sjá innslag Arnars í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Ólafía Þórunn kom út í mínus

Þó svo Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hafi endað í öðru sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðina í gær, og fengið hálfa milljón króna í verðlaunafé, kemur hún út í mínus eftir þátttöku sína.

Karen: Mikill munur á Evrópumótaröðinni og LPGA

"Þetta er rosalegur árangur og ég er ekki hissa á því að hún skildi fara alla leið,“ segir Karen Sævarsdóttir golfsérfræðingur um Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur sem endurskrifaði íslenska golfsögu í gær.

Maður þarf að vera ótrúlega sterkur

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir braut blað í íslenskri íþróttasögu þegar hún tryggði sér sæti á LPGA-mótaröðinni í golfi í gær. Ólafía Þórunn lenti í 2. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir mótaröðina og var hársbreidd frá sigri. Hún leggur mikið upp úr andlegum undirbúningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×