Lífið

Ragnhildur Steinunn ritstýrir sjónvarpsþætti

Ellý Ármanns skrifar
Katrín, Ragnhildur Steinunn og Unnsteinn.
Katrín, Ragnhildur Steinunn og Unnsteinn.
Sjónvarpskonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir ritstýrir þeim Unnsteini Manuel, úr Retro Stefsson og Katrínu Ásmundsdóttur í nýjum sjónvarpsþætti sem ber heitið Hæpið eins og Fréttablaðið greindi frá

,,Þetta verður skemmtilegt og krefjandi verkefni. Það er löngu kominn tími til að setja í loftið þátt sem fjallar um málefni unga fólksins. Mér finnst líka spennandi að vera bakvið tjöldin og fylgjast með Katrínu og Unnsteini blómstra á skjánum. Það er eitthvað gefandi við það," segir Ragnhildur sem er 
nýkomin frá London þar sem hún hóf upptökur á fjórðu þáttaröðinni af Ísþjóðinni.

Í London fylgdi hún tónlistarmanninum og BAFTA verðlaunahafanum Ólafi Arnalds eftir. Það verður því nóg um að vera hjá þessari ungu sjónvarpskonu og tveggja barna móður næsta vetur.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×