Lífið

Ragnhildur Steinunn giftist æskuástinni á Ítalíu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Haukur Ingi og Ranghildur á góðri stundu.
Haukur Ingi og Ranghildur á góðri stundu. vísir/daníel
Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og sálfræðingurinn Haukur Ingi Guðnason gengu í það heilaga á Ítalíu í gær.

Parið hefur verið saman í yfir tuttugu ár og eiga saman tvö börn.

Athöfnin fór fram á fallegum stað á Ítalíu en Edda Hermannsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, var á staðnum og birtir hún mynd úr brúðkaupinu á Facebook. Þar segir hún að brúðkaupið hafi verið fallegt í alla staði.

Haukur Ingi og Ragnhildur Steinunn byrjuðu saman árið 1996 og hóst samband þeirra þegar Ragnhildur var 15 ára.

Lífið óskar þeim innilega til hamingju.

Hér að neðan má sjá Heimsóknarþátt með Sindra Sindrasyni þegar hann kíkti við hjá þeim hjónum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×