Handbolti

Ragnheiður skaut Selfoss í kaf | Sigrar hjá Haukum og ÍBV

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ragnheiður skoraði níu mörk á Selfossi.
Ragnheiður skoraði níu mörk á Selfossi. vísir/vilhelm
Fram gerði góða ferð á Selfoss og vann fimm marka sigur, 25-30, á heimastúlkum í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.

Ragnheiður Júlíusdóttir fór mikinn í liði Fram og skoraði níu mörk. Steinunn Björnsdóttir og Ásta Birna Gunnarsdóttir komu næstar með sex mörk hvor en þessar þrjár gerðu 21 af 30 mörkum Fram í leiknum.

Selfoss leiddi með einu marki í hálfleik, 17-16, en í þeim seinni hertu gestirnir vörnina og sigldu fram úr.

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var eins og svo oft áður markahæst í liði Selfoss með átta mörk.

Mörk Selfoss:

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 8, Steinunn Hansdóttir 5, Adina Ghidoarca 5, Kristrún Steinþórsdóttir 4, Elena Birgisdóttir 2, Hildur Öder Einarsdóttir 1.

Mörk Fram:

Ragnheiður Júlíusdóttir 9, Ásta Birna Gunnarsdóttir 6, Steinunn Björnsdóttir 6, Hildur Þorgeirsdóttir 4, Guðrún Ósk Maríasdóttir 1, Hekla Rún Ámundadóttir 1, Marthe Sördal 1, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 1.

Ramune skoraði níu mörk gegn ÍR.vísir/stefán
Haukar endurheimtu 2. sæti deildarinnar með sjö marka sigri, 35-28, á ÍR í Schenker-höllinni í Hafnarfirði.

Vörn Breiðhyltinga réði ekkert við útilínu Hauka en þær Maria Ines Da Silve Pereira, Ramune Pekarskyte og Karen Helga Díönudóttir skoruðu samtals 26 mörk í leiknum.

ÍR var reyndar bara einu marki undir í hálfleik, 16-15, en í seinni hálfleikinn dró í sundur með liðunum.

Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir skoraði átta mörk fyrir ÍR sem er í 13. og næstneðsta sæti deildarinnar.

Mörk Hauka:

Maria Ines Da Silve Pereira 10, Ramune Pekarskyte 9, Karen Helga Díönudóttir 7, Ragnheiður Sveinsdóttir 3, Sigríður Jónsdóttir 2, Agnes Ósk Egilsdóttir 1, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 1, Vilborg Pétursdóttir 1, Ragnheiður Ragnarsdóttir 1.

Mörk ÍR:

Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir 8, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 5, Karen Tinna Demian 4, Jóhanna Björk Viktorsdóttir 4, Petra Waage 3, Þorbjörg Anna Steinarsdóttir 2, Hildur María Leifsdóttir 1, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 1.

Greta Kavaliuskaite fór mikinn gegn FH.vísir/ernir
Þá komst ÍBV aftur á sigurbraut þegar liðið bar sigurorð af FH, 27-21, í Eyjum.

Með sigrinum komst ÍBV aftur upp í 3. sæti deildarinnar en Eyjakonur hafa unnið alla átta heimaleiki sína á tímabilinu.

Greta Kavaliuskaite skoraði 11 mörk fyrir ÍBV en hún hefur því gert 19 mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins.

Elín Anna Baldursdóttir var markahæst í liði FH en hún skoraði sjö mörk gegn sínum gömlu félögum. FH er í 12. sæti deildarinnar með sjö stig.

Mörk ÍBV:

Greta Kavaliuskaite 11, Telma Amado 6, Ester Óskarsdóttir 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2, Vera Lopes 2, Sandra Dís Sigurðardóttir 2, Díana Dögg Magnúsdóttir 1.

Mörk FH:

Elín Anna Baldursdóttir 7, Rakel Sigurðardóttir 4, Jóhanna Helga Jensdóttir 4, Steinunn Snorradóttir 3, Sigrún Jóhannsdóttir 2, Hildur Marín Andrésdóttir 1.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×