Fótbolti

Ragnar og félagar héldu hreinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ragnar er í lykilhlutverki í liði Krasnodar.
Ragnar er í lykilhlutverki í liði Krasnodar. vísir/getty
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn í miðri vörn Krasnodar sem gerði markalaust jafntefli við FK Rostov í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Ragnar og félagar, sem enduðu í 3. sæti deildarinnar á síðasta tímabili, hafa farið rólega af stað í ár og eru með fjögur stig eftir þrjár umferðir.

Ragnar átti fínan leik í liði Krasnodar en liðið hefur haldið tvisvar hreinu í fyrstu þremur leikjum tímabilsins.

Næsti leikur Krasnodar er gegn Slovan Bratislava í forkeppni Evrópudeildarinnar. Rússarnir eru í fínni stöðu eftir fyrri leikinn sem þeir unnu 2-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×