Fótbolti

Ragnar og félagar áfram í Evrópudeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson. Vísir/Getty
Ragnar Sigurðsson og félagar hans í rússneska liðinu Krasnodar komust í kvöld í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Krasnodar gerði markalaust jafntefli á móti finnska liðinu HJK en fór örugglega áfram eftir 5-1 sigur í fyrri leiknum í Rússlandi.

Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn í þriggja miðvarða varnarlínu Krasnodar en ný styttist óðum í að hann hitti félaga síns í íslenska landsliðinu.

Ajax komst einnig áfram í Evrópudeildinni eftir markalaust jafntefli á útivelli á móti tékkneska liðinu Jablonec. Ajax kemst áfram á eina markinu í fyrri leiknum sem Arkadiusz Milik skoraði.

Rússneska liðið Rubin Kazan sló út Rabotnicki frá Makedóníu 2-1 samanlagt eftir 1-0 heimasigur í dag.

Qarabag frá Aserbaídsjan vann svissneska liðið Young Boys 3-0 og þar með 4-0 samanlagt.

Bordeaux frá Frakklandi fór líka áfram á fleiri mörkum á útivelli eftir 2-1 tap á móti Kairat í Kasakstan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×