Körfubolti

Ragnar búinn að semja við lið á Spáni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ragnar í leik með Þór.
Ragnar í leik með Þór. vísir/vilhelm
Körfuknattleikskappinn hávaxni Ragnar Nathanaelsson er búinn að semja við lið Caceres á Spáni. Félagið tilkynnti það í dag.

Hann er síðasti leikmaðurinn sem félagið ætlar að fá til sín í sumar og verður áhugavert að fylgjast með Ragnari á Spáni.

Ragnar yfirgefur þar með herbúðir Þórs frá Þorlákshöfn. Þetta er í annað sinn sem Ragnar reynir fyrir sér í atvinnumennsku en hann hafði áður verið í herbúðum Sundsvall í Svíþjóð þar sem hann fékk lítið að spila.

Caceres er í B-deildinni á Spáni og heimavöllur félagsins tekur 6.500 manns í sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×