Íslenski boltinn

Ragnar Bragi: Ég átti að fá víti

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Ragnar Bragi númer 9 í leik með Fylki
Ragnar Bragi númer 9 í leik með Fylki
Ragnar Bragi Sveinsson átti að fá vítaspyrnu þegar 20 mínútur voru til leiksloka í leik Fylkis og Þróttar í Pepsi-deild karla í fótbolta í kvöld í stöðunni 2-2 en þannig fór leikurinn.

„Jú, ég átti að fá víti,“ sagði Ragnar Bragi um atvikið. „Boltinn kemur þverrt fyrir markið. Ég er að fara að pota honum inn og þá er rifið aftan í treyjuna á mér, þá missi ég af þessum sentímetrum sem mig mig vantaði til að ná til boltans.“

Með sigri hefði Fylkir komist úr fallsæti og því má segja mistök Vilhjálms Alvars Þórarinssonar dómara leiksins dýrkeypt.

„Þetta var mjög dýrt en við eigum að skora fleiri mörk, það er ekki bara þetta atriði.“

Fylkir sótti mikið í fyrri hálfleik og fékk fjölda færa til að nánast gera út um leikinn.

„Við skjótum í slána og klúðrum tveimur dauðafærum. Svo er það sama gamla tuggan, léleg vörn og þeir labba í gegnum okkur í öðru markinu hjá þeim.

„Ég get ekki lýst því hve svekkjandi þetta er,“ sagði Ragnar Bragi.

Þrátt fyrir alla yfirburðina í fyrri hálfleik virtust Fylkismenn mæta værukærir til leiks í seinni hálfleik og nýtti Þróttur sér það.

„Ætli við höfum ekki bara verið orðnir of góðir með okkur og slakað of mikið á. Þetta hefur einkennt okkur. Þegar við komumst yfir þá slökum við allt of mikið á.“

Til að Fylkir haldi sæti sínu í deildinni þarf liðið að vinna KR í lokaumferðinni á laugardaginn og treysta á að Víkingur Ólafsvík vinni ekki Stjörnuna.

„Það gerðust ótrúlegir hlutir í gær í Inkasso-deildinni. Við verðum að trúa að eitthvað svona ótrúlegt geti gerst fyrir okkur, annars getum við sleppt því að fara á þennan völl,“ sagði Ragnar Bragi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×