Íslenski boltinn

Ragnar ánægður með framboð Guðna: „Þetta líst mér á“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ragnar í leik með íslenska landsliðinu á EM.
Ragnar í leik með íslenska landsliðinu á EM. vísir/getty
Eins og greint var frá fyrir skemmstu ætlar Guðni Bergsson, lögmaður og fyrrverandi landsliðsfyrirliði, að bjóða sig fram til formanns KSÍ. Guðni sendi frá sér tilkynningu þess efnis nú í morgun.

Geir Þorsteinsson hefur verið formaður KSÍ frá árinu 2007 og gefur áfram kost á sér til formennsku.

Það stefnir því í spennandi formannsslag á ársþingi KSÍ í Vestmannaeyjum 11. febrúar næstkomandi.

Meðal þess sem hafa lýst yfir ánægju sinni með framboð Guðna er Ragnar Sigurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins og Fulham á Englandi.

Ragnar deilir fréttinni á Twitter og skrifar við: „Þetta líst mér á“, eins og sjá má hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×