Fótbolti

Ragnar: Vantar aldrei hvatningu með landsliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar Sigurðsson segir að leikmenn hafi jafnað sig á niðurstöðunni gegn Lettlandi á laugardag, þar sem Ísland missti 2-0 forystu niður í jafntefli.

Liðið er nú komið til Konya í Tyrklandi þar sem að það mætir Tyrklandi í lokaleik sínum í undankeppni EM 2016. Ísland er þegar komið á EM en Tyrkland þarf að fá að minnsta kosti stig.

„Það er helst þegar þú minnist á þetta að leikurinn rifjast upp fyrir manni. En maður hefur verið það lengi í þessu að maður leyfir sér að svekkja sig í einn dag en svo er hugurinn kominn við næsta leik,“ sagði Ragnar en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

Hann hefur ekki áhyggjur af því að leikmenn mæti of afslappaðir til leiks á morgun, fyrst að EM-sætið er í húfi.

„Hvað mig varðar þarf ég aldrei að gíra mig upp í landsleiki. Það er frekar að það sé erfitt að gera það fyrir leiki með félagsliði sem skipta litlu máli. En það vantar aldrei hvatningu þegar maður spilar með landsliðinu.“

Ragnar segir eins og aðrir í hópnum erfitt að sjá fyrir hvernig Tyrkir muni nálgast leikinn á morgun.

„Við ætlum að spila okkar leik og svo sjáum við hvað þeir gera. Við þurfum að passa að sinna okkar vel - verjast sem heild og hlaupa til baka þegar boltinn tapast. Það vantaði aðeins í leiknum á laugardaginn.“

Kári Árnason, sem hefur spilað lengst af við hlið Ragnars í varnarlínu Íslands í undankeppninni, fór meiddur af velli á laugardag og Sölvi Geir Ottesen kom inn. Ragnar segir að það eigi ekki að koma að sök hverjir verði í vörn Íslands á morgun.

„Kári er búinn að vera frábær í þessari keppni en ég hef oft spilað með Sölva áður, bæði með landsliðinu og FCK. Við höfum alltaf náð frábærlega saman. Hvað mig varðar skiptir það ekki máli hvor spilar eða hvort Kári og Sölvi spili saman í vörninni - það yrði alltaf jafn gott.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×